Suðurland

 

SUÐURLAND

  
 

Geirland
 

Veitingahúsið er opið öll kvöld í sumar og er hægt að velja á milli fjölbreyttra rétta af matseðli; Reykt klausturbleikja með sinnepsósu ásamt brauði og salati, Klausturbleikja með svepparisotto og wassabisósu, Lambafille með ofnbökuðu rótargrænmeti og rauðvínssósu, og Saltfisk að hætti Geirlands.  Yfir daginn eru ferðalangar velkomnir að fá sér kaffisopa eða aðrar létta drykki.  Þess má geta að húsfreyjan hún Erla er fyrsti íslenski kvenkokkurinn á Íslandi og á hún heiðurinn af skyrköku Hamborgarafabrikkunnar, en sú kaka er einmitt á eftirréttarmatseðli kvöldsins á Geirlandi.

Opnunartími:  Á sumrin frá kl. 18 -21:30 en á öðrum tíma eftir samkomulagi  

Nánar...
 Geirland - veitingar
 

 Hótel Höfðabrekka
 


Á sveitahótelinu Höfðabrekku er boðið upp á fjölbreytt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann (júní, júlí, ágúst).  Matsalurinn er bjartur og rúmgóður og mikill metnaður er lagður í að veita góða þjónustu og fyrsta flokks matvæli með áherslu á mat úr héraði. Utan sumartíma er boðið upp á a la carte matseðil.

Opnunartími:  Veitingastaðurinn okkar er opinn í kvöldverð frá kl. 18:00 alla daga, og er öllum opinn. Við bjóðum upp á hlaðborð frá 1.júní - 31. ágúst. Eftir það erum við með a la carte matseðil.

 
Nánar...
 Hótel Höfðabrekka - Veitingar
 

 Vellir
 

Á Völlum geta ferðamenn komið við og fengið sér hressingu frá morgni til kvölds.  Ýmsar gerðir af kaffi og súkkulaði eru í boði og það er alltaf eitthvað gott til með kaffinu.  Á kvöldin (kl. 19-21) er boðið upp á 3ja rétta máltíðir. Notalegt andrúmsloft og fallegt útsýni yfir ströndina og til fjalla.

Opnunartími:  Allt árið
 
Nánar...
 Vellir - Veitingar
 

 Hótel Anna
 

Á sumrin er kaffihúsið opið fyrir gesti og gangandi og er hægt að fá létta rétti, heita og kalda drykki.  Frá kl. 18.30 – 21.00 er hægt að velja kvöldverð eftir matseðli og er áhersla lögð á ferskleika hráefnis og mat úr héraði.  Morgunverður er á boðstólnum kl. 8-10.

Opnunartími:  Kaffihúsið er opið yfir sumarið frá 1.maí til 15. sept.  Hægt er að fá kvöldmat allt árið frá kl. 18.30 til 21.00 á veitingastaðnum.

Hótel Anna er með matseðilinn á heimasíðunni sinni www.hotelanna.is

Nánar...
 Hótel Anna - Veitingar
 

 Hótel Fljótshlíð, Smáratúni
 

Hótel Fljótshlíð býður uppá 3ja rétta kvöldverð dagsins, hamborgara/samlokur og franskar o.þ.h. og grænmetisrétt dagsins. Hótelið er aðili að Beint frá býli og nýtur hráefnin í framreiðslu rétta í veitingasal, svo sem nautakjöt, heimabökuð brauð, sultur, egg o.s.frv.

Opnunartími:  Júní, júlí og ágúst frá kl. 18:00-21:00.
 
Nánar...

 Hótel Fljótshlíð - Veitingar
 

 Kaffi Sel í golfskálanum í Selsvelli
 

Kaffi-Sel er staðsett í golfskálanum á Selsvelli og er boðið upp á fjölbreytt úrval veitinga af matseðli. Á matseðlinum má m.a. finna úrval af heimatilbúnum pizzum og pizzusósu.  Allt grænmetið er af svæðinu sem og megnið af því hráefni sem er í boði á matseðlinum.  Salurinn tekur um 140 manns í sæti og er því tilvalinn fyrir hópa, stóra sem smáa, giftingaveislur, fermingaveislur eða önnur tilefni.  Í salnum er gott hljóðkerfi og skjávarpi sem hentar vel fyrir fundahald sem og myndasýningar í tilefni af afmælinu eða giftingunni.

Við hliðiná golfskálanum er handverkshúsið Skógarsel og í þessarri stofu er til sölu og sýnis handverk sem aðallega er unnið af handverksfólki af Suðurlandi. Fjölmargir listamenn leggja handverksstofunni til listmuni og er áhersla lögð á íslenskan efnivið.  Stofan er hluti af verkefni sem handverksfólk úr uppsveitunum vinnur nú að þar sem Fjalla-Eyvindur og Halla verða í forgrunni. Verkefnið snýst um að tálga tréstyttur af þeim hjúum og láta fylgja ágrip af sögu þeirra með hverjum grip. Í Skógarseli má finna rennda muni, s.s. skálar og vasa, leikföng, styttur ýmiskonar, dúkkukerrur og margt fleira. Sjón er sögu ríkari.
 
Kaffi Sel er með matseðilinn á heimasíðunni sinni www.kaffisel.is  

Opnunartími:  Opið er yfir sumartímann og fyrir hópa eftir nánara samkomulagi.  Veitingastaðurinn opnar kl. 8 á morgnana og er eldhúsið opið til kl. 20.30.
 
Nánar...

 Kaffi sel - Veitingar
 

 Hótel Gullfoss
 

Á veitingastaðnum er boðið upp á kvöldverð alla daga vikunnar yfir sumartímann.  Á matseðlinum eru fjölmargir íslenskir réttir, bæði sjávarréttir og kjötréttir. Vínveitingaleyfi.
    
Opnunartími:  Frá 20. maí til 15. september er opið frá kl. 18-21 öll kvöld vikunnar.
 
Nánar...
 Hótel Gullfoss - Veitingar
 

 Grímsborgir í Grímsnesi
 

Grímsborgir Restaurant er glæsilegur veitingastaður sem tekur 70 manns í sæti. Boðið er upp á À la carte matseðil, t.d. matmiklar súpur, humar, kjöt- og fiskréttir, salöt og fleiri. Kökur, belgískar vöfflur og ís eru í boði með kaffinu.
 
Opnunartími:  Opið alla daga frá kl. 8:00 - 22:00
 
Nánar...
 Grímsborgir - Veitingar