Uppskeruhátíðin 2009
Þann 20. nóvember var haldin Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda undir yfirskriftinni Hvernig þjónum við þér best? á Hótel Hafnarfirði. Boðið var upp á námskeið deginum áður auk þess sem tekið var upp á þeirri nýjung að hafa Opið hús á skrifstofunni. Hátíðinni lauk á jólahlaðborði á Fjörukránni þar sem menn stigu dans fram á nótt. Hér fyrir neðan er í stuttu máli farið yfir helstu dagskrárliðina 19. og 20. nóvember.
Að þjóna til borðs
Öllum félögum gafst tækifæri til að sækja námskeiðið Þjónað til borðs en það var í boði Ferðaþjónustu bænda og Félags ferðaþjónustubænda og sett upp í samvinnu við Sæmund fróða og Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi. Námskeiðið heppnaðist vel og verður boðið upp á sama námskeið eftir áramót. Einnig eru hugmyndir um að bjóða upp á fleiri námskeið eftir áramót, má þar m.a. nefna smurbrauðsnámskeið.
Kynning fyrir nýja félaga og opið hús
Auk almennrar kynningar á Ferðaþjónustu bænda var sagt frá samskiptum við skrifstofuna og farið yfir tölvumálin. Í framhaldi af kynningunni var opið hús frá kl. 16-18 á skrifstofunni í Síðumúlanum. Félagarnir eru alltaf velkomnir á skrifstofuna en með opnu húsi gefst félögum tækifæri til að hitta starfsfólk skrifstofunnar og aðra félaga á sama tíma.
Fróðleg erindi og heimskaffi
Eftir molakaffi kl. 9 á föstudagsmorgni og setningu formanns Félags ferðaþjónustubænda Marteins Njálssonar var farið yfir bókunarkerfi og veflausnir sem ferðaskrifstofan hefur verið að setja upp. Marteinn, Sævar framkvæmdastjóri, Oddný og Hugrún sáu um að leiða fundargesti í gegnum þennan heim sem opnar nýjar leiðir í sölu-og markaðssetningu á gistingu hjá Ferðaþjónustu bænda. Næst tók Berglind við og fór yfir helstu gæðamál í framhaldi af sumrinu; úttektir sumarsins, umsagnir frá gestum og niðurstöður úr samstarfsverkefni við Better Business. Niðurstöðurnar úr verkefninu komu vel út og fengu 10 félagar af 17 þátttakendum í verkefninu viðurkenningu fyrir góðan árangur - sjá frétt. Eftir góðan hádegiverð í boði Ferðaþjónustu bænda – Bændaferða hf. hlýddu félagar á erindi Árnýjar Elíasdóttur um markvissa starfsmannastjórnun og þar á eftir kom lögfræðingurinn Heimir Örn Herbertsson og leiddi fundargesti í sannleika um hvað má og hvað má ekki þegar kemur að verðlagningu og samráði um verð og þjónustu.
Síðasti dagskrárliðurinn var hið svokallaða heimskaffi en þar fengu allir fundargestir tækifæri til að ræða saman í hópum og velta fyrir sér spurningunni Hvernig þjónum við þér best? (þ.e. Ferðaþjónusta bænda – Bændaferðir og Félag ferðaþjónustubænda). Þessi aðferð til að virkja alla fundargesti til þátttöku í umræðum reyndist vel og verða niðurstöðurnar notaðar til að styrkja enn frekar starf ferðaskrifstofunnar og hagsmunafélagsins.

Undirritun samstarfssamnings við Útflutningsráð.
Fyrir hádegisverðinn var skrifað undir samstarfssamning við Útflutningsráð Íslands - sjá frétt.
Kvöldskemmtunin
Áður en haldið var í jólahlaðborðið í Fjörukránni var hópnum boðið í kynningu og fordrykk í Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi. Þar var námsframboðið við skólann kynnt og ljóst er að þarna eru í boði mörg námskeið og nokkrar námsleiðir sem geta nýst ferðaþjónustubændum vel í starfi. Góðum degi lauk svo eins og fyrr segir á Fjörukránni í Hafnarfirði þar sem jólamatur var á boðstólum og í framhaldi af því dansleikur undir söng Gylfa Ægissonar og Rúnars Þórs.
Það var ekki annað að heyra á ferðaþjónustubændunum en að þeir væru mjög ánægðir með Uppskeruhátíðina 2009.
Sjá kynningar frá 20. nóvember:
Gerum góða gistingu betri (Berglind Viktorsdóttir)
Mannauður í ferðaþjónustu (Árný Elíasdóttir)
Skyldur og ábyrgð samtaka fyrirtækja samkvæmt samkeppnislögum (Heimir Örn Herbertsson)