Umsókn í félagið

 

Umsókn í Félag ferðaþjónustubænda

 
Félag ferðaþjónustubænda er búgreinafélag og fá félagar aðild að Bændasamtökum Íslands með inngöngu sinni. Til þess að gerast aðili að félaginu þarf rekstraraðili að hafa lögheimili á lögbýli eða að ferðaþjónusta rekstaraðila sé á lögbýli. 

Ennfremur þarf viðkomandi að hafa rekstrarleyfi frá sýslumanni/lögreglustjóra fyrir viðkomandi ferðaþjónustu. 

Það byggir á:
  • Leyfi frá heilbrigðisfulltrúa
  • Leyfi frá vinnueftirliti
  • Leyfi frá eldvarnareftirliti
  • Samþykki byggingarfulltrúa

 

Hér má sækja wordskjal sem inniheldur umsóknareyðublað, umhverfisstefnu og lög Félags ferðaþjónustubænda.  Eyðublaðið skal senda undirritað til Gæðastjóra Ferðaþjónustu bænda: Síðumúla 2 - 108 Reykjavík og mun heimsókn verða skipulögð í framhaldi af því.

Áður en sótt er um inngöngu er nauðsynlegt að kynna sér gæða- og flokkunarkerfi Ferðaþjónustu bænda.


Fyrirspurnir vegna inngöngu berist formanni félagsins, Sigurlaugu Gissurardóttur.
með tölvupósti: sigurlaug@brunnholl.is  bréfleiðis: Félag ferðaþjónustubænda - Brunnhóll á Mýrum - 781 Höfn í Hornafirði
eða símleiðis: 478 1029 & 855 1629

Einnig má hafa samband við gæðastjóra Ferðaþjónustu bænda, Elínu Berglindi Viktorsdóttur - berglind@farmholidays.is eða bréfleiðis: Síðumúli 2 - 108 Reykjavík eða símleiðis: 570 2710

Verðskrá fyrir aðild að Félagi ferðaþjónustubænda
  • Árgjald í Félagi ferðaþjónustubænda er kr.14.000
  • Hjá gistiaðilum er einnig gjald á hvert gistirými án baðs (og svefnpokapláss) kr. 200, og með baði kr. 400 á hvert gistirými.
  • Inntökugjald fyrir nýja félaga er 50.000 kr.
Kynningargjöld vegna bæklinga og vefsíða eru greidd til Ferðaþjónustu bænda hf. 
Upplýsingar um gjaldskrá gefur Berglind í síma 570-2710 eða tölvupósti berglind@farmholidays.is
   
 

Til athugunar fyrir þá sem hyggja á rekstur í ferðaþjónustu 

Ferðamálastofa hefur tekið saman lítið rit með ýmsum gagnlegum upplýsingum fyrir þá sem hyggja á rekstur í ferðaþjónustu. Þar er farið yfir þætti er lúta að leyfismálum, hvernig hægt er að koma sér á framfæri og fjallað um stuðningsumhverfi ferðaþjónustunnar. Tilgangurinn er að hjálpa fólki fyrstu skrefin og auðvelda því að leita sér upplýsinga. 
 >> Ná í viðhengi