Sjálfbærnistefna
Ferðaþjónusta bænda - Bændaferðir hf er ferðaskrifstofa sem leggur áherslu á náttúru- og menningartengda ferðaþjónustu. Hún sérhæfir sig annars vegar innanlands í kynningu, markaðssetningu og sölu á gistingu og afþreyingu hjá íslenskum ferðaþjónustubændum um allt land og hins vegar í sölu bændaferða og sérferða á erlendri grundu.
Í samvinnu við Félag ferðaþjónustubænda ætlar ferðaskrifstofan að vera í fararbroddi í sjálfbærri ferðaþjónustu hér á landi. Þessi stefna og framkvæmd hennar í daglegum rekstri fyrirtækjanna verður eitt mikilvægasta gæðatákn framtíðar í ferðamálum.
Með sjálfbæra ferðaþjónustu að leiðarljósi mun ferðaskrifstofan leggja sitt af mörkum til að draga úr neikvæðum áhrifum greinarinnar á umhverfið. Jafnframt að stuðla að verndun náttúrunnar og vekja athygli á þeirri menningu sem blómstrar á hverjum stað.
________________________
Stjórn og starfsfólk Ferðaþjónustu bænda hf mun því :
- vinna árlega að úrbótum í helstu málaflokkum Staðardagskrár 21 og Green Globe, sem m.a. stuðla að minni mengun og verðmætasóun t.d. með endurnýtingu, endurvinnslu, orkusparnaði og notkun á umhverfisvænum efnum,
- velja frekar vörur og þjónustu sem koma úr heimabyggð og sem lágmarka neikvæð umhverfisáhrif, þar sem því verður viðkomið,
- ráða til starfa fólk úr heimabyggð þegar tækifæri gefst til þess,
- leita eftir frekari fræðslu um umhverfismál og koma þeim upplýsingum áfram til starfsfólks og félagsmanna,
- hafa umhverfisstefnuna sýnilega almenningi og almennt hvetja til þátttöku í að vernda umhverfið með okkur,
- stuðla að dreifingu ferðamanna í tíma og rúmi við skipulagningu ferða þar sem við á,
- stuðla að verndun menningar- og náttúruminja,
- uppfylla ákvæði laga og reglugerða sem tengjast starfseminni,
- endurskoða umhverfisstefnuna reglulega og sækja árlega um umhverfisvottun Green Globe.
Sævar Skaptason
Framkvæmdastjóri
Nóvember 2009
Sjálfbærnistefna 2009.pdf

Skrifstofan er Green Globe vottuð