29.11.2011
Hestajól í Hestheimum 3.des.
Laugardaginn 3. desember er margt um að vera hjá Hestheimum, en þá verða haldin hestajól sem er jólasölusýning á vegum söluhóps Hestheima. Það vera sýningar, kynning á hnökkum, fræðsluerindi, ríflega 20 söluhestar sýndir, Happy-hour ásamt hakkrétti í kúrekastíl á góðu verði.
Helgi Björns syngur! Afar spennandi söluhestar!
Kynnið ykkur dagskránna og kíkið á hestajól hjá Hestheimum nk. laugardag.
• Siggi Sig frá Þjóðólfshaga 1 verður með sýnikennslu
• Diddi og Jón Söðli kynna hnakka: Barra, Barra 2 og Stakk
• Guðmar Aubertsson dýralæknir verður með fræðsluerindi.
• Hestakerrukynningar frá Vögnum og þjónustu og Álgluggum.
• Ríflega 20 söluhestar verða sýndir, allir athyglisverðir og hægt að prófa þá á staðnum!
• Happy –Hour! Bjór á súpergóðu verði
• Kraumandi sterkur hakkréttur í kúrekastíl á litlar 1.000,- á manninn.
• Ókeypis söluskoðun á keyptum hestum!
• 2 reiðkennslutímar fylgja hverjum seldum hesti!
Reiðkennarar:
Hallgrímur Birkisson, Arabæ
Ísleifur Jónasson, Kálfholti
Ólafur Þórisson, Miðkoti
Sigurður Sigurðarson, Þjóðólfshaga 1.
Tómas Snorrason, Litla-Landi.
Frábært tækifæri til að gera góð kaup fyrir jólin !
Stuð og stemming á Hestajólum í Hestheimum: Góð skemmtun, góðir hestar og gott fólk !
Hestheimar (www.hestheimar.is) í Ásahreppi er ferðaþjónustubýli þar sem boðið er upp á gistingu í notalegu gestahúsi með heitum potti. Hestheimar eru við veg 281, 3 km frá þjóðvegi 1, 50 mín. akstur frá Reykjavík.
Nánar um Hestheima
Hafa samband við Hestheima
 |
 |
|
Garri frá Hæl, brúnn frá Arabæ |
Hnappur frá Galtastöðum, bleikur frá Arabæ |