Flokkun gistingar

Ferðaþjónustuaðilar innan Ferðaþjónustu bænda eru flokkaðir eftir ítarlegu flokkunarkerfi.
 
 
GISTISTAÐIR eru flokkaðir í eftirfarandi flokka:

Heimagisting: 
Gestir dvelja inni á heimili gestgjafanna.  Herbergin eru einföld en þægileg.
 
Gistihús bænda:
Tilvalinn staður fyrir þá sem vilja ekki búa inni á heimili gestgjafa.  Herbergin geta verið í séríbúð í húsi gestgjafanna, íbúðarhúsi eða öðru rými sem breytt hefur verið í gistihús (t.d. hlaða eða fjós), smáhýsum og sumarhúsum.  Í þessum flokki er bæði að finna herbergi með og án baðs.

Sveitahótel:
Fyrir þá sem vilja aukin þægindi og hærra þjónustustig.  Meirihluti herbergja er með sérbaðherbergi auk þess sem meiri kröfur eru gerðar til húsbúnaðar og þjónustu á staðnum en í heimagistingu og á gistihúsum bænda.

Sumarhús:
Sumarhús eru leigð út sem ein heild til lengri eða styttri dvalar (yfirleitt með sængum, sængurverum og handklæðum).  Hér getur bæði verið um að ræða hefðbundna sumarbústaði úr timbri eða hús sem áður hafa verið notuð sem íbúðarhús.  Sumarhúsin skiptast í fjóra flokka eftir aðstöðu og þægindum, þ.e. A-D.  Þá eru dæmi um að sumarhús í flokki C séu seld sem herbergi með baði og morgunverði (III. flokkur).

 

 
FLOKKUN HERBERGJA innan Ferðaþjónustu bænda - Uppbúin rúm fl. I, II, III og IV


Herbergi eru flokkuð í fjóra flokka, þ.e. flokk I, II III og IV.  Í öllum flokkum er morgunverður í boði.  Aðgangur er að sameiginlegri setustofu og síma.  Herbergjum er hægt að læsa.  Búið er um rúm gesta og herbergi ræst daglega ef óskað er. Hreint handklæði fylgir hverju rúmi. 

   Herbergi í flokki I eru án baðs og handlaugar og eru þau í heimagistingu og gistihúsum.
   Herbergi í flokki II.  Öll skilyrði I. flokks eru uppfyllt en að auki eru í herberginu handlaug og fatahengi.   Þau eru helst að finna á gistihúsum en einnig í heimagistingu og á sveitahótelum.
   Herbergi í flokki III eru með sérbaðherbergi og er þau að finna á gistihúsum og í heimagistingu.
   Herbergi í flokki IV eru með baði og eingöngu á sveitahótelum. Þá er gerðar meiri kröfur varðandi aðbúnað í herbergjum auk hærra þjónustustigs en í heimagistingu og á gistihúsum bænda.   
Svefnpokapláss. Þessi aðstaða getur verið í herbergjum af venjulegri stærð (1-4ra manna) eða í sal. Svefnpokagisting er aðallega í rúmum þó svo að dýnur séu oft notaðar ef þarf að bæta inn aukarúmi.  

 
FLOKKUN SUMARHÚSA innan Ferðaþjónustu bænda

Öll sumarhús eiga að uppfylla kröfur Ferðaþjónustu bænda varðandi snyrtimennsku bæði innanhúss og utan.  Snyrting með a.m.k. salerni og handlaug. Svefnaðstaða fyrir þann fjölda sem húsið er skráð fyrir.
 
Fjölid gesta í bústað miðast við fjölda rúma en auk þess kemur fram í bæjartextanum fjöldi svefnherbergja og hvort um svefnsófa og svefnloft sé að ræða. Sængur og koddar fylgja hverju rúmi og hægt er að leigja rúmföt og handklæði. Eldunaraðstaða, eldhúsáhöld og borðbúnaður fyrir skráðan fjölda gesta. Reykskynjari og slökkvitæki.  Oft uppfylla húsin að einhverju leyti meiri kröfur en flokkur þeirra segir til um en til þess að komast í hærri flokk þurfa öll skilyrði hans að vera uppfyllt. Þrif á bústað eru ekki innifalin.
 
  Þetta eru yfirleitt lítil hús - stofa með eldunar- og svefnaðstöðu.  Einnig snyrting en sturta er ekki skilyrði.   
  B  Í þessum húsum er a.m.k. eitt svefnherbergi með rúmum. Setustofa með þægilegum stólum og eldhúskrókur.
  C  Til viðbótar við kröfur B bætist við sturta og vel útbúið svefnherbergi.  Utandyra er verönd með grilli og garðhúsgögnum.
  D  Vel vandað til húsbúnaðar innandyra.  Góður heildarsvipur innan- jafnt sem utandyra.   Sjónvarp og geislaspilari.  Heitur pottur við húsið.
 
 
>HÉR< má sjá flokkunarkerfi Ferðaþjónustu bænda í heild sinni.
 
Ferðamálastofa viðurkennir flokkun gistingar innan Ferðaþjónustu bænda.  lesa meira....