Suðvesturland / Suðurland:
|
Kríunes er fallegt gistiheimili staðsett rétt við bæjarmörk Kópavogs við vestanvert við Elliðavatn. Í Kríunesi eru þrír fundarsalir til útleigu og er allur búnaður til staðar s.s. skjávarpi, flettitöflur og þráðlaus nettenging. Fundarsalirinir rúma upp í ca. 40 – 50 manns. Einnig er boðið upp á veitingar þ.m.t. kvöldverð. Á Kríunesi eru 8 herbergi með baði og einnig svítur. Í Kríunesi er einnig aðstaða fyrir ca. 80 manna veislur.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
|
Eyrarkot í Kjós er snoturt gamalt sveitabýli 15 km frá Mosfellsbæ sem gert hefur verið upp. Aðstaða til fundarhalda er í gömlu hlöðunni. Tilvalið fyrir smærri hópa sem vilja komast í friðsæld og sveitastemningu. Gisting er í uppbúnum rúmum fyrir 10 manns.
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
|
Fossatún er staðsett á bökkum Grímsár í Borgarfirði. Veitingahús sem tekur allt að 100 manns í sæti. Einnig góð funda- og ráðstefnuaðstaða.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
|
Sveitahótel með öllum þægindum í einungis 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Á hótelinu er góð aðstaða til ráðstefnuhalds en fundarsalurinn rúmar um 30-40 manns. Öll tæki eru tiltæk til fundarhalda, þ.a.m. skjávarpi, tölva, tússtafla o.s.frv. Kjörið fyrir hópa sem þurfa næði til að einbeita sér og fá nýjar hugmyndir. Hótelið er búið 26 rúmgóðum tveggja manna herbergjum og eru baðherbergi, sjónvarp og internettenging í hverju herbergi. Afþreyingu má finna fyrir utan dyrnar.
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
|
Hótel Hekla á Skeiðum er sveitahótel í um 80 km fjarlægð frá Reykjavik. Þar er ráðstefnusalur fyrir um 60 manns og 100 manna matsalur. Á staðnum eru 36 herbergi með baði. Vel staðsett fyrir skoðunarferðir á Suðurlandi, t.d. Gullfoss, Geysir, Þingvellir, Þjórsárdalur.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
|
Hestheimar í Ásahreppi er ferðaþjónustubýli þar sem boðið er upp á gistingu í notalegu gestahúsi með heitum potti. Einnig er svefnpokagisting á hlöðulofti fyrir 18 manns og fullbúið eldhús. Rúmgóður matsalur fyrir allt að 180 manns er undir sama þaki og reiðhöllin. Tilvalið fyrir alls konar uppákomur, s.s. hvata- og óvissuferðir, dansleiki, línudans og kvöldverði.
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
|
Á Hellishólum eru sumarhús eru í þremur stærðum og veitingasalur fyrir allt að 170 manns, hentugur fyrir fundarhöld, veislur eða ættarmót.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
Norðvesturland:
|
|
|
|
Gauksmýri er við þjóðveg 1 mitt á milli Reykjavíkur og Akureyrar, 194 km til hvors staðar. Á Gauksmýri er boðin upp á góða fundar- og veitingaaðstöðu, herbergi með sérbaði og án baðs.
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
Norðausturland:
|
|
|
|
Gisting á fallegum stað í Eyjafjarðarsveit með útsýni yfir fjörðinn. 17 herbergi með baði. Fundaraðstaða, tilvalin fyrir námskeið og fyrirlestra.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
|
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði er staðsett við þjóðveg nr.1 um 10 mínútna akstur frá Akureyri. Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða fyrir allt að 50 manns. Veislusalur fyrir allt að 100 manns í sæti, tilvalið fyrir árshátíðir og fundi. Einnig boðið upp á gistingu í 33 herbergjum, öll með sér baðherbergi, síma og sjónvarpi. Internettenging er á hótelinu og heitur pottur sem gott er að slaka á í eftir daglegt amstur. Arinn í setustofu og í borðsal. Góð staðsetning fyrir skoðunarferðir um Norðurlandið.
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
Suðausturland:
|
|
|
|
Staðarborg er staðsett í fögru umhverfi Breiðdalsins. Góð aðstaða til funda, veisluhalda eða ættarmóta. Gisting í 26 rúmgóðum herbergjum, öll með sérbaði og sjónvarpi. Veitingar í boði: Morgunverður og kvöldverður, einnig hádegisverður fyrir hópa.
Hafðu samband
|
|
 |
| |
|
|
Smyrlabjörg er um 45 km frá Höfn í Hornafirði. Góð aðstaða fyrir ráðstefnur eða fundi og árshátíðir fyrir 20-50 manns. Hentug staðsetning fyrir skoðunarferðir um Suðausturland. Jeppa- og snjósleðaferðir á Skálafellsjökul (2 km), dags- og kvöldferðir.Suðausturland:
Hafðu samband
|
|
|
| |
|
|
|
Gistiheimilið á Hala er tilvalið fyrir námskeið og minni samkomur utan háannatíma. Boðið er upp á sérstakar helgarferðir að Hala í Suðursveit á þessum vetri fyrir stofnanir og starfsmannahópa eða hverja þá sem langar að taka sér smá helgarfrí og njóta fræðslu og skemmtunar í notalegu umhverfi. Þórbergssetur stendur fyrir öflugu menningarstarfi sem tengist sögu og bókmenntum og hefur nú unnið upp allmikið af fræðsluefni um héraðið sem hægt er að miðla til gesta.
Hafðu samband
|
|
 |