Fjölskyldan ~ Suðvesturland
644 Sólheimahjáleiga í Mýrdal
Búskapur: Kýr, kindur, hestar og hænsni.
Gisting: Gistihús bænda
Annað: Í samráði við gestgjafa er hægt að skoða búskapinn á bænum. Merktar gönguleiðir í nágrenninu.
648 Ásólfsskáli undir Eyjafjöllum
Búskapur: Kýr, sauðfé, skógrækt og hundurinn Kjarkur.
Gisting: Sumarhús með heitum potti.
Annað: Heitur pottur við bæði sumarhúsin. Kirkjustaður. Merktar gönguleiðir í Ásólfsskálaheiði, frá 2 km. uppí 9 km. langar, gengið upp undir Eyjafjallajökul.
649 Stóra-Mörk III, V-Eyjafjöllum
Búskapur: Kýr, kindur, hundur og kettir.
Leiktæki: Rólur, vegasalt, trampolín, rennibraut o.fl.
Gisting: Gistihús bænda - Á neðri hæð íbúðarhússins.
Annað: Merktar gönguleiðir í nágrennninu.
662 Hestheimar í Ásahreppi
Búskapur: Hestar, kindur, kálfar, hundur og kettir.
Leiktæki: Rólur.
Gisting: Gistihús bænda.
Annað: Hægt að taka þátt í sveitastörfum. Reiðskóli fyrir 5 ára og eldri (lengri og styttri hestaferðir) og góðar gönguleiðir í nágrenninu.
686 Vorsabær 2 á Skeiðum
Búskapur: Hestar, kindur, geitur, nautgripir, hundar og kettir.
Gisting: Sumarhús með tveimur svefnherbergjum og svefnlofti.
Annað: Sannkallað "sveitalíf" í boði, gestir geta tekið þátt í eða fylgst með bústörfum, skoðað dýrin á bænum og komist á hestbak undir leiðsögn. Tilvalinn afþreyingarmöguleiki fyrir fjölskylduna, þar sem hægt er að komast í snertingu við dýrin og kynnast bústörfum á mismunandi árstímum. Tekið er á móti fólki í stutta heimsókn og leiðsögn veitt um búið eða til dvalar í nokkra daga eftir samkomulagi.
689 Hrosshagi í Bláskógabyggð
Búskapur: Kýr, kálfar, hestar, kettir og hundur.
Gisting: Sumarhús með heitum potti.
Annað: Gestir velkomnir að kíkja í fjósið. Skemmtilegar gönguleiðir og mikið fuglalíf í Hrosshagavík.
11 Hjalli í Kjós – Kaffi Kjós
Búskapur: Kindur, hestar, köttur og 2 hundar.
Gisting: Eitt smáhýsi fyrir 4.
Kaffi Kjós: Kaffi Kjós er veitingastaður sem leggur áherslu á heimilislegt umhverfi og heimabakað bakkelsi sem allir í fjölskyldunni kunna yfirleitt að meta. Hundarnir Smali og Neró taka vel á móti öllum. Fyrir börnin er innidót, kubbar, bækur og blöð. Úti á palli er rennibraut og bátur, gaman er að leika í brekkunni og stundum eru kýrnar frá næsta bæ alveg við girðinguna. Stutt er niður að Meðalfellsvatni, en þar njóta börnin sín á öllum aldri.
Annað: Á bænum Hjalla er lítið fjölskylduvænt tjaldsvæði með salernis- og sturtuaðstöðu, aðgangur að rafmagni, útivaskur, rennibraut og sandkassi. Hægt er að skreppa í fjöruferð í sveitinni og ágætis gönguleiðir eru í nágrenninu. Góð inniaðstaða fyrir ættarmót og aðrar samkomur. Einnig er aðstaða fyrir hestamenn; hesthús fyrir 10 hesta og góð útiaðstaða, tvískipt gerði. Beitarhólf. Tilvalinn áningastaður á hestaferðum.
14 Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd
Búskapur: Sauðfé, hestar, hænur, kanínur, hundar og kisur.
Leiktæki: Leikvöllur hjá sumarhúsunum þar sem eru rólur, vegasalt, sandkassa og körfuboltaspjald.
Gisting: Sumarhús með heitum pottum og tjaldsvæði.
Annað: Gönguferðir með leiðsögn, móttaka skólahópa, leikjanámskeið og annarra ungmennahópa. Gallerí Álfhóll á bænum. Stutt í sundlaug golfvöll, veiði og kajaksiglingar.
24 Fossatún í Borgarfirði
Leiktæki: Risaleikkastali, mini-golf, sparkvöllur, trambólín, skriðkringla, útikeila, útitafl ofl.
Gisting: 5 stjörnu tjaldsvæði.
Aðstaða: Stórt útigrill, borð og sæti fyrir 50 manns. Heitir pottar (skiptiklefar og sturtur).
Annað: Léttur gönguhringur um sögusvið sögunnar Tryggðatröll en á leiðinni eru skilti með myndum og texta úr sögunni, náttúra, örnefni og tröll svo og munir s.s. varða með handafari Drífu, fornt leiksvæði barna með bustabæ, tröllatak (aflraunasteinar tröllabarna) o.fl.
Tónmilda Ísland: Bráðskemmtileg og áhugaverð stuttmynd um íslenska tónlist og náttúru.
102 Hraunsnef í Norðurárdal
Gæludýr: 3 labrador-hundar, 2 hestar, og hænuungar.
Leiktæki: Trampólín, rólur, vegasalt, sandkassi og lítill fótboltavöllur.
Annað: Ratleikurinn „Leitin að fjársjóði kattarins (lágm. 8 í hópi), álfaganga sem gefur okkur innsýn í heim hulduvera og jeppasafarí. Á veitingastaðnum er m.a. hægt að fá gamla góða grjónagrautinn!
Gisting: Sveitahótel og 5 stjörnu tjaldsvæði.