Fjölskyldan ~ Norðvesturland

 
183  Hótel Núpur
Leikaðstaða:  Dýnuherbergi" í boði fyrir yngri kynslóðina, kricket, kubbaspil, leiktækjahorn, litabækur og liti, fótboltavöll.
Annað:  Gisting á heimavistinni.  Þá má geta þess að á Þingeyri sem er í 15 mínútna fjarlægð er sundlaug, íþróttanámskeið fyrir börnin alla virka daga, „barnvænn“  golfvöllur, kvöldvökur öll laugardagskvöld í sumar fyrir alla fjölskylduna með varðeld og söng á Víkingasvæðinu.

 
190  Heydalur í Mjóafirði
Búskapur:  Hestar, köttur, hundur og talandi páfagaukur.
Leiktæki :  Á tjaldsvæðinu fyrir börn og þrautabrautir fyrir unglinga. 
Gisting:  Á sveitahótelinu, í sumarhúsi eða á tjaldsvæði staðsett á mögnuðum stað við Heydalsá.
Annað:  Tilvalið fyrir fjölskylduna að fara í göngutúr inn í dal. Kjarrið gefur möguleika á mörgum útivistarleikjum. Fuglaspjöld með öllum fuglum dalsins og jurtaspjöld  eru staðsett á viðeigandi stöðum . Tilvalið að fá gátlista. Náttúrulaug er stutt frá bænum og stutt í fjöruna.  Innisundlaug í suðrænu umhverfi sem stendur gestum til boða á eigin ábyrgð.  Hestaleiga,kajakleiga og veiði.
Kraftasteinar til að spreyta sig á.

 
233  Kirkjuból á Ströndum
Leiktæki:   Rólur, belgir, sandkassi og fótboltavöllur, lítið bú-hús þar sem m.a. er eldavél, dúkkukerrur, bílar o.s.frv.
Gæludýr:   Kanína
Gisting:  Í gistihúsinu sem samanstendur af tveimur íbúðarhúsum.
Annað:   Á sumrin er kaffistofa og sögusýning  um sauðfjárbúskap í félagsheimilinu Sævangi sem er í göngufæri.  Þar eru líka heimalningar og gefst börnum kostur á að gefa þeim pela.   Stutt er niður í fjöru. Réttir á haustin.

 
266  Neðra-Vatnshorn í Húnaþingi vestra
Búskapur:  Kindur og hestar.
Gisting:  Gisting í gamla íbúðarhúsinu.
Annað:   Tækifæri til að kynnast lífinu í sveitinni, t.d sauðburði, réttum o.fl.  Börn teymd á hestum og góðar gönguleiðir frá bænum og í nágrenninu. 

 
280  Húnavellir í Svínadal
Leiktæki:  Klifurkastali, rólur og rennibraut.
Gisting:   Herbergi á gömlu heimavistinni.   Svefnpokapláss í skólastofum.  Einnig tjaldsvæði (snyrting inni á gististaðnum).  Útigrillaðstaða.  Góð aðstaða fyrir ættarmót.
Annað:   Góð íþróttaaðstaða (sparkvöllur, fótboltavöllur, hlaupabrautir, frjálsíþróttavöllur, sundlaug og heitur pottur.  Veiði í Svínavatni.  Ágætis gönguleiðir um nágrennið.

 
282  Stekkjardalur í  Svínadal
Búskapur:  Kýr, hross, kindur, köttur og hundur. 
Gisting:  Íbúðarhús, leigt út í einu lagi.  Í samráði við gestgjafa er hægt að fá að skoða búskapinn.
Annað:   Sérgarður við húsið sem er lokaður af, grill í garðinum.  Veiði í Svínavatni og 15 km að sundlauginni  á Hótel Húnavöllum.

 
285  Hof í Vatnsdal
Búskapur:  Kindur, hross, hænur, endur og hundur.
Leiktæki:   Róla, rennibraut og kastali.
Gisting:  Gistihús við staðsett rétt við sveitabæinn.
Annað:  Heitur pottur. Nýskógrækt og gamall skógur, fuglaskoðun, gönguleiðir við allra hæfi. Sauðburður á vorin og göngur og réttir á haustin.

 
336  Keldudalur – Gestahús á Hegranesi
Búskapur:   Kýr, naut, og kálfar, sauðfé, hestar og hænur.
Gisting:  Í sumarhúsi og svefnpokaplássi.
Annað:  Í samráði við gestgjafa er hægt að skoða búskapinn.  Einnig fuglaskoðun, kumlateigur frá víkingaöld og kirkjugarður frá 11. öld.