Fjölskyldan ~ Norðausturland
373 Dæli í Skíðadal
Búskapur: Nautgripir og sauðfé.
Gisting: Sumarhús
Annað: Möguleiki á að fylgjast með bústörfum, Svæðið er paradís útivistarfólks að sumri sem vetri. Fjöldi kortlagðra gönguleiða og fuglaskoðun í Friðlandi Svarfdæla. Húsbílar og tjöld einnig leyfð í samkomulagi við ábúendur.
374 Skjaldarvík í Eyjafirði
Búskapur: Hestar, hundur, kanínur og landnámshænur
Leiktæki: Leiksvæði fyrir börn
Gisting: Gistihús bænda
Afþreying: Hestaleiga
Annað: Heitur pottur, setustofa & bar með sjónvarpi,
bókasafni og spilum.
380 Pétursborg í Glæsibæjarhreppi
Gæludýr: Hundur og köttur
Leiktæki: Sandkassi og trampolin.
Gisting: Gistihús bænda og sumarhús.
Annað: Heitur pottur og grill.
385 Ytra-Laugaland í Eyjafjarðarsveit
Búskapur: Kýr og kindur.
Gisting: Heimagisting
Annað: Gestum er velkomið að skoða húsdýrin og hestaleiga er í nágrenninu. Sundlaugin í Hrafnagilsskóla er í 2,5 km fjarlægð. Á vorin er mjög fjölskrúðugt fuglalíf á svæðinu.
395 Hléskógar við Eyjafjörð
Búskapur: Hestar, nautgripir, kindur, geitur, hundur, kettir, kanínur og hænur.
Leiktæki: Trambólín, rólur, sandkassi.
Gisting: Tjaldsvæði og gisting á neðri hæð íbúðarhússins. Á tjaldsvæðinu er rafmagn, eldunaraðstaða, salerni og vaskar (hægt að fara í sturtu í sundlauginni á Grenivík – 5 km)
Annað: Gestum húsdýragarðsins er boðið til stofu í kaffi og kökur.
425 Vogafjós við Mývatn
Búskapur: Kýr, kindur og hænur
Gisting: Gistihús bænda
Annað: Hægt er að fylgjast með mjöltum úr veitingastofunni sem er staðsett í miðju fjósi. Kýrnar erum mjólkaðar tvisvar á dag kl. 7.30 á morgnana og 17.30 á kvöldin. Hægt að smakka volga mjólk beint úr kúnum.
455 Garður I í Aðaldal
Búskapur: Hestar, kálfar og kettir
Gisting: Gisting á neðri hæð íbúðarhússins.
Annað: Möguleiki á styttri hestaferðum , m.a. leitt undir börn á hestbaki. Einnig góð aðstaða til fuglaskoðunar.
498 Skjöldólfsstaðir í Jökuldal
Leiktæki: Rólur og trampólín.
Gisting: Herbergi á skólavistinni, tjaldsvæði.
Annað: Sundlaug og heitur pottur. Húsdýragerði á Klausturseli sem er í 17 km. fjarlægð, þar sem m.a. eru hreindýr til sýnis.
Barnahornið: Leikföng, bækur, myndbönd, dýnur og púðar.
505 Gistihúsið Álfheimar v/Bakkagerði í Borgarfirði eystra
Búskapur: Sauðfé
Gisting: Gistihús bænda við þorpið Bakkagerði .
Annað: Gestum er velkomið að fylgjast með daglegu lífi á bænum t.d. sauðburði á vorin og göngum/réttum á haustin. Fuglaskoðun í höfninni. Ævintýraland fyrir börnin. Reiðhjólaleiga.
538 Eyjólfsstaðir
Leiktæki: Rólur, sandkassi, körfuboltavöllur og sparkvöllur á túninu.
Gisting: Gistihús bænda
Annað: Veiði í Grímsá og svo má gjarnan spássera í skóginum.