Fjölskyldan í fyrirrúmi

Dvöl hjá félögum í Ferðaþjónustu bænda getur verið skemmtileg tilbreyting fyrir fjölskylduna og góð leið til að njóta frítímans saman. 

Á bæjunum er sérstök áhersla lögð á að fjölskyldan geti átt góðan tíma saman í nálægð við náttúruna, dýrin og ýmis konar afþreyingu. 

Á þeim bæjum sem búskapur er stundaður gefst kostur á að komast í kynni við dýrin í samráði við gestgjafana.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um þá bæi sem henta fjölskyldufólki sérstaklega vel, skipt niður eftir landshlutum.

Við bjóðum ykkur velkomin á bæina okkar!