Önnur afþreying
Siglingar
5 Kríunes v/Elliðavatn
Bátsferð: Hægt að fá bát til að fara út á Elliðavatn – fyrir gesti (einnig hægt að veiða.
Annað: Gististaður við Elliðavatn.
15 Hlíð í Hvalfjarðarsveit
Bátur og veiði: Hægt að fara út á bát í 3 vötn (Eyrarvatn, Þórisstaðavatn og Geitabergsvatn). Veiðikort fylgir bátnum.
Annað: Sumarhús og heitur pottur. Veiðileyfi.
190 Heydalur í Mjóafirði
Kajaksigling: Sex kajakar eru til leigu með eða án leiðsagnar. Styttri og lengri ferðir.
Mjóifjörður er vel til kajaksiglinga fallinn og útsýni fagurt út fjörðinn norður að Drangajökli.
Annað: Sveitahótel, tjaldsvæði, hestaleiga, gönguferðir, veiði og gott leiksvæði fyrir börn og unglinga.
370 Ytri-Vík á Árskógsströnd
Sigling: Hægt að leigja bát í nokkra daga með sumarhúsaleigu – einnig möguleiki á sjóstöng.
Annað: sumarhús, heitir pottar, veiðileyfi og merktar gönguleiðir á svæðinu.
550 Sólbrekka í Mjóafirði
Sigling: Bátsferðir um fjörðinn – einnig möguleiki á sjóstöng. Einnig sigling með Fjarðaferðum frá Neskaupsstað – www.fjardaferdir.is
Annað: Sumarhús. Einnig veitingasala og gisting í svefnpokaplássi á Sólbrekku.
Fjórhjólaferðir
402 Draflastaðir í Þingeyjarsveit
Fjórhjól: Fjórhjólaferðir allt frá 30 mínútum til dagsferða.
Annað: Gistihús bænda (uppbúin rúm og svefnpokapláss). Heitur pottur.