Gönguleiðir
Gönguleiðir hjá ferðaþjónustubændum
Merktum gönguleiðum fer fjölgandi hér á landi og á það líka við hjá ferðaþjónustubændum. Þá eru víða óstikaðar gönguleiðir og þá benda bændur gjarnan gestum sínum á stuttar gönguleiðir t.d. upp á bæjarhólinn eða að ákveðnum kennileitum sem tengjast sögu staðarins.

11 Hjalli í Kjós – Kaffi Kjós
Stutt frá höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið í Kjósinni er að finna ágætis göngusvæði fyrir þá sem vilja fara í styttri göngur eða dagsgöngur (allt að 6 tíma gönguferðir). Í Kaffi Kjós er hægt að nálgast Kjósarkort þar sem búið er að merkja inn á gönguleiðir eins og um Svínaskarð, Kirkjustígur (við Kirkjustaðinn Reynivelli), Gíslagata, Meðalfell, Eyjadalur, Sandfell. Gönguleiðirnar eru ekki stikaðar en vel merkjanlegar í umhverfinu. Ekki má gleyma Esjunni, en margar gönguleiðir eru á Esju, t.d. er hægt að fara upp að sunnanverðu og ganga yfir og fá sér hressingu í Kaffi Kjós. Fyrir yngstu kynslóðina eru fjörurnar spennandi, en í sveitinni og eru þær vel aðgengilegar, t.d. Hvalfjarðareyrin og Búðarsandur. Fuglaskoðunarstaðir eru t.d. Eyjatjörn, Hurðabaksef, Laxárós, Meðalfellsvatn, Bugða, Hvalfjarðareyri.
14 Bjarteyjarsandur í Hvalfjarðarsveit
Í Hvalfirðinum er mikið um skemmtilegar og fallegar gönguleiðir. Hægt er að nálgast upplýsingar um hinar ýmsu leiðir en einnig er hægt að panta leiðsögn heimamanns um ákveðin svæði. Áhersla er lögð á náttúru, umhverfi, sögustaði og menningarminjar. Dæmi um styttri ferðir eru um Miðsand (braggahverfið), fjöruganga og ganga um Botnsdalinn. Lengri ferðir eru t.d. fornu þjóðleiðirnar tvær; Leggjabrjótur (á Þingvöll) eða Síldarmannagötur (í Skorradal). Ganga upp að Glym, hæsta fossi landsins og /eða Hvalvatni eru einnig dæmi um lengri gönguferðir.
24 Fossatún í Borgarfirði
Léttur gönguhringur um sögusvið sögunnar Tryggðatröll en á leiðinni eru skilti með myndum og texta úr sögunni, náttúra, örnefni og tröll svo og munir s.s. varða með handafari Drífu, fornt leiksvæði barna með bustabæ, tröllatak (aflraunasteinar tröllabarna) o.fl.
102 Hraunsnef í Norðurárdal
Álfaganga sem gefur okkur innsýn í heim hulduvera. Einnig má nefna ratleikinn „Leitin að fjársjóði kattarins“ (lágmark 8 í hópi). Þá eru ýmsar skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu, eins og t.d. ganga upp að Sesselju-vörðu sem er fyrir ofan bæinn. Þar er útsýni í suður yfir Grábrók, Hreðavatn og sveitirnar – og austur yfir Norðurárdalinn og yfir Grjótháls og á góðum dögum sést í jökla. Frá Sesselju-vörðu er hægt að halda áfram upp að Fossinum Rjúkanda, en hann er þrískiptur (misvatnsmikill foss) en hægt er að ganga á bakvið hann í efsta hlutanum. Einnig er hægt að halda áfram upp á Hraunsnefsöxl en sú ganga tekur 2-3 tíma. Hraunsnefsöxl hefur tvö síðustu ár verið fjall fjölskyldunnar hjá ungmennafélunum. Þessar leiðir eru stikaðar en ekki merktar inná göngukort.
105 Snorrastaðir í Kolbeinsstaðarhreppi
Skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu, t.d. á eldgíginn Eldborg en þaðan er mjög gott útsýni.
131 Hótel Hellnar, Hellnum
Hótel Hellnar bjóða gestum sínum upp á gott gönguleiðakort af Hellnum og næsta nágrenni, meðal annars af hinni vinsælu gönguleið milli Hellna og Arnarstapa. Helstu staðir á Hellnum eru merkt inn á kortið t.d. Bárðarlaug, Laugarbrekka fæðingarstaður Guðríðar Þorbjarnardóttur og Maríulindin
141 Suður Bár í Grundarfirði
Góðar gönguleiðir í nágrenninu t.d. upp á Klakk sem er fyrir ofan bæinn. Þá er fjaran aðeins 5 mínútna gangur niður í fjöru.
187 Kirkjuból í Bjarnadal
Segja má að til séu endalausar gönguleiðir í Önundarfirði og yfir fjallaskörð til annarra fjarða. Ein leiðin frá bænum er að Mosvallarhorni um Kálfabana (5-6 klst.) og önnur leið liggur um Hólsdal, en fyrir sunnan bæin Hól í firði eru fallegir dalir sem gaman er að skoða. Gengið er up frá bænum og upp með Hólsánni (3-4 klst). Hægt er að fá leiðbeiningar um nokkrar gönguleiðir sem gestgjafarnir mæla með og jafnframt er hægt að sækja göngufólk þegar komið er til byggða í öðrum fjörðum.
190 Heydalur í Mjóafirði
Gamlar gönguleiðir eru úr Heydal yfir í Skötufjörð (5-6 klst.), Laugadal (4-5 klst.) og Dýrafjörð. Ef fólk óskar er í boði að aka því á göngustað og skilja bílinn eftir á áfangastað í Heydal. Einnig er í boði göngu- og veiðiferð með leiðsögn að Ausuvatni (5-6 klst).
233 Kirkjuból á Ströndum
Merkt gönguleið er á Kirkjubóli upp á Kirkjubólsfjall (4,8 km hringur). Gefið hefur verið út kort um leiðina. Á Ströndum gefst fólki færi á að kynnast náttúrunni náið, rölta um merktar og ómerktar gönguleiðir með áttavita og nesti. Útivistarfólk hefur nægt rými til að vera eitt með sjálfu sér og njóta kyrrðarinnar sem svo sannarlega er nóg af. Gefið hefur verið út kort með gönguleiðum á Ströndum og Vestfjörðum öllum. Hægt er að nálgast það á Uplýsingamiðstöðinni á Hólmavík og öllum betri viðkomustöðum ferðamanna í sýslunni.
268 Gauksmýri í Húnaþingi vestra
Á Gauksmýri er svokölluð Gauksmýrartjörn en hún er dæmi um endurheimt votlendi. Vestan við tjörnina er fuglaskoðunarhús með kíki og fuglabókum. Það liggur göngustígur frá þjóðveginum að húsinu. Gangan tekur u.þ.b. 10 mínútur en stígurinn er einnig hjólastólafær að hluta til. Bílaplan er við stíginn og getur fólk geymt bíla sína þar á meðan gengið er.
Eins er skemmtilegt að ganga niður að Miðfjarðarvatni. Sú leið er reiðslóði sem farinn er þegar riðið er að vatninu. Vatnsnesfjallið býður upp á skemmtilega og létta fjallgöngu en þaðan er mjög víðsýnt og sést til jökla í suðri, Eiríksjökuls og Langjökuls. Það er reiðslóði sem liggur langleiðina upp í fjall en sú ganga tekur u.þ.b. 2 - 2,5 klst. Þá eru einnig fleiri göngu- og reiðleiðir upp á Vatnsnesfjall.
275 Dæli í Víðidal
Í Dælislandi er ein merkt gönguleið, en hún liggur upp að litlum fossi með steinbrú yfir sem nefnist Steinbogi og tekur gangan 1 ½ - 2 klst. Ýmsir aðrir göngumöguleikar eru í nágrenninu eins og t.d. að Koluglúfrum ( 5 km), og lengri ómerktar leiðir liggja t.d. upp á Víðidalsfjall og í gegnum Hvarfsgjá yfir í Vatnsdal. Á bænum er hægt að kaupa göngukort fyrir Húnaþing-vestra en þar er að finna fjölda gönguleiða.
354 Flugumýri í Skagafirði
Fjalllendið allt umhverfis láglendið í Skagafirði býður upp á skemmtilegar óbyggðaferðir, miserfiðar allt eftir óskum hvers og eins. Tilvalið er að ganga á Molduxa (706 m.y.s.) fyrir ofan Sauðárkrók og Tindastól (989 m.y.s.) við utanverðan Skagafjörð. Einnig er vinsælt að ganga á Mælifellið. Gefin hafa verið út göngukort af vestanverðum Skagafirði og eru þar fjölmargar leiðir merktar inn á auk leiðarlýsinga.
357 Engimýri í Öxnadal
Það er einkum þrennt sem gefur svæðinu í kringum Engimýri gildi til útivistar. Í fyrsta lagi er það umgerð fjallanna sem minna óneitanlega svolítið á Alpafjöllin, í öðru lagi ævintýraheimur hólanna og í þriðja lagi Hraunsvatnið og sögutengslin við Jónas Hallgrímsson. Fjölbreyttar gönguleiðir eru í nágrenninu eins og Hraunsvatn og Hraunstapar, Þverbrekkuhnjúkur, Drangafjall, Kiðlingsdalur yfir í Hörgárdal og Varmavatnshólafjall og nágrenni. Nánari upplýsingar um gönguleiðirnar hjá gestgjöfunum á Engimýri.
370 Ytri-Vík
Á bænum er hægt að fá gönguleiðakort um Tröllaskagann en þar eru einhverjar gönguleiðir stikaðar.
373 Dæli í Skíðadal
Í Skíðadal er paradís göngu- og skíðafólks og gönguleiðir um Tröllaskagann til allra átta að sumri sem vetri, bæði erfiðar og léttar leiðir. Áhugaverðir staðir í Skíðadal sem vert er að skoða eru margir, svo sem Gljúfrárjökull í botni Gljúfurárdals, Steinboginn í Heiðinnamannafjalli, fossarnir í Þverá, Holá og Sæluá, Gloppuvatn í Gloppuskál, grjótjökull í Geldingadal, auk margra fjallatoppa sem auðvelt er að ganga á og útsýni stórkostlegt til allra átta, má þar nefna Dýjafellshnjúk og Kerlingu.
461 Keldunes II í Kelduhverfi
Gönguleið er á milli Kelduness og Ásbyrgis meðfram Jökulsá, en leiðin á milli eru 12 km. Þá eru merktar og skipulagðar gönguleiðir frá Gljúfrastofu við Ásbyrgi. Á bænum er hægt að nálgast göngukort af svæðinu.
503 Ferðaþjónustan Ekru
Það ættu allir að hafa gaman af því í góðu veðri að fara í dagsferð í Stóruurð. Þá er ekki langt í Bakkagerði en þaðan liggja ýmsar gönguleiðir t.d. gönguleiðin um Víknaslóðir.
505 Gistiheimilið Álfheimar, Borgarfirði eystra
Fjöldi merktra gönguleiða um "Víknaslóðir", svæðið milli Njarðvíkur og Seyðisfjarðar, alls um 140 km. Gott gönguleiðakort, fæst víða, m.a. hjá Ferðafélagi Íslands í Mörkinni 6, Reykjavík, Eymundsson í Kringlunni, Upplýsingamiðstöðinni á Seyðisfirði, Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum og hjá ferðaþjónustuaðilum á Borgarfirði. Nokkrir aðilar verða með skipulagðar ferðir um svæðið í sumar, m.a. heimamenn.
550 Sólbrekka í Mjóafirði
Nokkrar stikaðar gönguleiðir, t.d. yfir Brekkugjá til Seyðisfjarðar (6 klst), trúss í boði.
588 Hólmur á Mýrum
Svæðið umhverfis Hólm býður upp á möguleika til styttri og lengri gönguferða. Til norðurs liggur stórt opið svæði allt til Fláajökuls og Jökulfells. Sunnan og vestan Hólms er einnig stórt mýrlendissvæði. Svæðið er auðugt af fuglalífi. Unnið er að uppbyggingu á ýmsum jarðfræði og fræðslustígum í landi Hólms og nágrenni. Hægt er að fá gönguleiðakort af svæðinu.
589 Skálafell í Suðursveit
Bærinn Skálafell er staðsettur um 500 metra frá Vatnajökulsþjóðgarðinum og eru að finna margar gönguleiðir í nágrenninu. Frá bænum eru gönguleiðir allt frá 2-9 km langar og er Hjallaneshringurinn vinsælust þeirra en hún er 7 km löng og tekur um 2-3 klst. Á þessari leið má glöggt sjá hvernig jökullinn hefur sorfið landslagið. Fjölbreytt dýralíf s.s. fuglar og sauðfé og ef menn eru heppnir þá má jafnvel sjá refi og hreindýr. Gönguleiðirnar eru merktar á sérstöku göngukorti og eru sumar þeirra stikaðar.
590 Brunnhóll á Mýrum
Fjölbreyttar gönguleiðir eru í nágrenninu - gönguleiðarkort eru til sölu á Brunnhóli. Sem dæmi um gönguleiðir má nefna göngu að Fláajökli austanverðum eftir merktri gönguleið og útivistarsvæði í eigu Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu. Veðursælt er í Haukafelli og þar eru merktar gönguleiðir og fræðsluskilti.
596 Hali í Suðursveit
Merktar gönguleiðir og ratleikur í nánasta umhverfi þar sem sagan birtist við hvert fótmál. Hægt er að panta gönguferðir með leiðsögn um fjallendi Suðursveitar.
648 Ásólfsskáli undir Eyjafjöllum
Merktar gönguleiðir um fjalllendið uppundir Eyjafjallajökul, frábært útsýni, sérstök gil og gljúfur.
649 Stóra-Mörk, V-Eyjafjöllum
Merktar gönguleiðir frá bænum á fallega staði, s.s. Nauthúsagil og Bæjargil. Einnig dagsferðir í Þórsmörk með leiðsögn.
675 Steinsholt II í Gnúpverjahreppi
Hægt er að fara bæði í langar og stuttar gönguferðir frá bænum og opnast þá víða gott útsýni. Ekki þarf að ganga langt, til að komast á þann stað þar sem Ásgrímur Jónsson listmálari sat þegar hann málaði Heklumynd sína, sem sjá má á Listasafni Íslands. Ef fólk vill fara í lengri gönguferð þá mælum við með Hlíðarkistu. Þaðan opnast stórkostlegt útsýni, ef skyggni leyfir. Esjan, Flúðir, Stóra-Laxá, Geysir, Jarlhettur, Langjökull, Hekla, Eyjafjallajökull, Tindfjallajökull, Þríhyrningur, Þjórsá, Vestmannaeyjar og margt fleira má þar líta.
692 Hótel Gullfoss, Brattholti
Frá Hótel Gullfossi er um þriggja kílómetra ganga að Gullfossi. Þá er Haukadalsskógur stutt frá en þar eru að finna merktar gönguleiðir.