Golf
Golf í sveitinni
Það gæti verið góð tilbreyting að hvíla sig á golfvöllunum á höfuborgarsvæðinu og í staðinn skella sér í golf hjá ferðaþjónustubændum. Það eru 7 bæir með 9 holu golfvelli en á einum stað er að finna 18 holu golfvöll.
38 Nes í Reykholtsdal
Golf: 9 holu golfvöllur, golfskáli (búið að sækja um aðild að GSÍ)
Annað: Gisting, veitingasalur, heitur pottur og nudd í boði.
120 Gistihúsið Langaholt í Staðarsveit
Golf: 9 holu strandvöllur (GSÍ)
Annað: Gisting, tjaldsvæði og veitingar. Löng gullin strönd með fjölbreyttu fuglalífi.
141 Suður-Bár
Golf: 9 holur og æfingasvæði. Hægt að leigja kylfur. (GSÍ)
Annað: Gisting, styttri hestaferðir, merktar gönguleiðir og stutt í fjöruna.
384 Leifsstaðir í Eyjafirði
Golf: 9 holu golfvöllur, púttvöllur og æfingasvæði.
Annað: Gisting og léttar veitingar.
630 Hótel Laki í Landbroti
Golf: 9 holu völlur í Landbrotshólum (GSÍ)
Annað: Gisting, veitingastaður, grillaðstaða fyrir hópa, veiði, nudd og merkt gönguleiðir.
652 Hellishólar í Fljótshlíð
Golf: Þverárvöllur, 9 holu völlur þar sem Þverá og Grjóta renna í gegnum. Krefjandi og skemmtilegur (GSÍ)
Annað: Veitingastaður, gisting í sumarhúsum, tjaldsvæði, heitir pottar, veiði og leiksvæði fyrir börn.
680 Efra-Sel - Kaffi-Sel – nálægt Flúðum
Golf: 18 holu golfvöllur er í landi Efra-Sels og boðið er upp á æfingasvæði, púttflöt og æfingaglompu (GSÍ)
Annað: Veitingastaður og tjaldsvæði.
GSÍ: Aðilar að Golfsambandi Íslands – sjá www.golf.is