To Main Navigation.
Merktum gönguleiðum fer fjölgandi hér á landi og á það líka við hjá ferðaþjónustubændum. Þá eru víða óstikaðar gönguleiðir og þá benda bændur gjarnan gestum sínum á stuttar gönguleiðir, t.d. upp á bæjarhólinn eða að öðrum kennileytum
Íslenski hesturinn er vinsæll á meðal gesta og margir hafa áhuga á að komast á hestbak. 19 ferðaþjónustubæir víða um land bjóða upp á lengri og styttri hestaferðir auk þess sem 4 bæir bjóða upp á sérstakar hestasýningar.
Víða er hægt að fara í áhugaverðar siglingar og er spennandi að prófa að fara á kajak eða að sigla á bát til að veiða. Fimm bæir bjóða upp á siglingar, en einn upp á spennandi fjórhjólaferðir.
Það gæti verið góð tilbreyting að hvíla sig á golfvöllunum á höfuborgarsvæðinu og í staðinn skella sér í golf hjá ferðaþjónustubændum. Það eru 7 bæir með 9 holu golfvelli en á einum stað er að finna 18 holu golfvöll.
Gisting og afþreying um allt land hjá bændumFerðaþjónusta bænda er ferðaskrifstofa í eigu bænda og eru um 150 gisti- og afþreyingaraðilar sem kynna hér þjónustu sína. Nánar um okkur
Heimagisting
Gistihús bænda
Sveitahótel
Sumarhús