Ferðaþjónusta bænda kynnir með stolti bæ mánaðarins!
Í byrjun hvers mánaðar er valinn einn ferðaþjónustubær innan vébanda Ferðaþjónustu bænda sem hefur staðið sig sérstaklega vel á sviði gæða - og umhverfismála, vöruþróunar og í þjónustu við viðskiptavini. Þá er einkum horft til sérstöðu staðarins og nýbreytni á sviði þjónustu og afþreyingar. Val á bæ mánaðarins byggist á umsögnum gesta og mati starfsfólks skrifstofu Ferðaþjónustu bænda.