Teiknisamkeppni

Ert þú 4-11 ára og klár að teikna?

   
 
Ferðaþjónusta bænda efnir til teiknisamkeppni með yfirskriftinni „Páskasæla í sveitinni“. Sendu inn þína mynd fyrir 5. apríl 2013 og þú gætir unnið gistingu á ferðaþjónustubæ fyrir alla fjölskylduna eða aðra skemmtilega fjölskylduvæna vinninga! 

Fyrirkomulag teiknisamkeppninnar

Veittir verða samtals 6 vinningar fyrir skemmtilegustu myndirnar í tveimur aldursflokkum, 4-7 ára og 8-11 ára. Um er að ræða þrjá vinninga fyrir hvorn aldursflokk.
 
Teikningar skulu endurspegla þemað „Páskasæla í sveitinni“, annars er útfærsla myndarinnar frjáls.

Senda má myndir á netfangið sveit@sveit.is merkt "Teiknisamkeppni", á fésbókarsíðu Ferðaþjónustu bænda, það má líka koma með þær eða senda í pósti til Ferðaþjónusta bænda, Síðumúla 2, 108 Reykjavík merkt „Teiknisamkeppni“.

Innsendum myndum þurfa að fylgja upplýsingar um fullt nafn og aldur barns og nafn, símanúmer og netfang foreldris/forráðamanns.

Dómnefnd á vegum Ferðaþjónustu bænda mun fara yfir innsendar teikningar og vinningshafar verða kynntir þann 15. apríl 2013.

Glæsilegir vinningar í boði fyrir skemmtilegustu myndirnar!

•    Hestheimar í Ásahreppi: Gisting fyrir 2 fullorðna og 2 börn í eina nótt í gestahúsi með morgunverði og reiðtúr í 1 klst fyrir fjóra. Gildir til 15.maí 2013.
•    Hótel Háland við Sprengisandsveg: Ein nótt með morgunverði í fjölskyldusvítu sem rúmar allt að 6 manns.
•    Gistihúsið Egilsstöðum: Gisting í eina nótt fyrir 2 fullorðna og 2 börn.
•    Hótel Lækur í Hróarslæk: Gisting fyrir 2 fullorðna og 2 börn í eina nótt með morgunverði. Gildir til 1 júní 2013.
•    Skjaldarvík í Eyjafirði: Gisting fyrir 2 fullorðna og 2 börn í eina nótt með morgunverði. Gildir til 30. október 2013.
•    Bjarteyjarsandur, Hvalfirði: Heimsókn í sauðburð fyrir alla fjölskylduna, leggur og skel og litasett og litir.

 
 

 
Börn starfsfólks Ferðaþjónustu bænda hf og félaga í Ferðaþjónustu bænda mega ekki taka þátt.
Ferðaþjónusta bænda áskilur sér rétt til að nota innsendar myndir í kynningarefni.