Fréttasafn

22.12 2011

Jólakveðja frá Ferðaþjónustu bænda

 
Kæru vinir
Við óskum ykkur gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári

 

 
 
13.12 2011

Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda

 
Á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda 23. nóvember sl. veitti skrifstofa Ferðaþjónustu bænda sex bæjum innan samtakanna viðurkenningar og er það í fyrsta sinn sem skrifstofan veitir verðlaun sem þessi. Viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum; Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2011 og Hvatningarverðlaun Ferðaþjónustu bænda 2011. 
 
Það eru margir mjög frambærilegir staðir innan Ferðaþjónustu bænda og er það von starfsfólks skrifstofunnar að þessar viðurkenningar sem ætlunin er að veita árlega verði öðrum hvatning til þess að vanda til verka og skara fram úr á sínu sviði – hver á sinn einstaka hátt!
 
29.11 2011

Hestajól í Hestheimum 3.des.

 
Laugardaginn 3. desember er margt um að vera hjá Hestheimum, en þá verða haldin hestajól sem erjólasölusýning á vegum söluhóps Hestheima. Það vera sýningar, Helgi Björns syngur, kynning á hnökkum, fræðsluerindi, ríflega 20 söluhestar sýndir, Happy-hour ásamt hakkrétti í kúrekastíl á góðu verði.
Kynnið ykkur dagskránna og kíkið á hestajól hjá Hestheimum nk. laugardag.
 
Hestheimar í Ásahreppi er ferðaþjónustubýli þar sem boðið er upp á gistingu í notalegu gestahúsi með heitum potti. Hestheimar eru við veg 281, 3 km frá þjóðvegi 1, 50 mín. akstur frá Reykjavík.