Fréttasafn

18.12 2009

Jól í Álfhóli - Jólastemning í sveitinni!

 
Helgarnar 28. og 29. nóvember og 5. og 6. desember verður árlegur jólamarkaður í Álfhól á Bjarteyjarsandi. Margt verður með hefðbundnu sniði, svo sem eins og einstök jólastemning, fallegt handverk og listmunir, rjúkandi heitt súkkulaði og jólakökur, tónlistarflutningur og upplestur.
04.12 2009

10 félagar fá viðurkenningu vegna góðrar þjónustu frá Better Business

Á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda þann 20. nóvember síðastliðinn fengu 10 félagar í Ferðaþjónustu bænda viðurkenningu fyrir frábæra þjónustu.  Þetta er liður í gæðaverkefninu „Gerum góða gistingu betri“ sem Ferðaþjónusta bænda lagði af stað með í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Better Business árið 2008.  Þetta er annað sumarið af þremur sem félögum gefst tækifæri á að taka þátt í þessu verkefni og tóku 17 ferðaþjónustubæir þátt í verkefninu í sumar. 
24.11 2009

Samstarf við Útflutningsráð Íslands

Á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda þann 20. nóvember síðastliðinn var undirritaður samstarfssamningur við Útflutningsráð Íslands, sem felur í sér samvinnu  um handleiðslu- og þróunarverkefni og nýtist félögum innan vébanda Ferðaþjónustu bænda.