Sveitahótel með öllum þægindum; herbergi með baði, sjónvarp og nettenging í hverju herbergi. Hótelið er tileinkað umhverfinu og sögu íslenska hestsins. Fyrsta hótelið sem fær viðurkenningu norræna umhverfismerkisins Svansins. Matsalur fyrir 60 manns, bar og ráðstefnuaðstaða. Auk gistingar bjóða Eldhestar upp á fjölbreytt úrval hestaferða – allt frá 1 klst. upp í vikulangar hestaferðir.
Hótel Eldhestar eru staðsettir við veg 1.
Opið: Allt árið (lokað yfir jól og áramót).
Næsta þéttbýli/sundlaug/golf: Hveragerði 2 km.
Gestgjafar
Hróðmar Bjarnason