Á Friðheimum er boðið upp á hestasýningar. Hér er um faglega sögu- og gangtegundasýningu að ræða sem tekur um 12 mínútur í flutningi. Sýningin er hnitmiðuð, hvoru tveggja fræðandi og skemmtileg upplifun. Hún veitir innsýn í eitt merkasta hestakyn heims sem hefur verið samofið menningu og þjóð í gegnum aldirnar. Eftir sýninguna er ferðamönnum boðið inn í hesthús þar sem hægt er að komast í návígi við hrossin, taka myndir og spjalla við knapana.
Þeir sem hafa áhuga á grænmetisræktun gefst kostur á að skoða tómatræktunina á bænum í framhaldi af hestatengdu uppákomunni. Hægt að panta sýningu fyrir hópa, 10 manns og fleiri. Sýningin er til á ýmsum tungumálum.
Friðheimar eru í Reykholti, um 90 km frá Reykjavík við veg 35.
Húsdýr: Hestar
Opið: 01.06. - 01.10
Gestgjafar
Knútur Ármann, Helena Hermundardóttir.