Fallegt sveitabýli í aðeins 16 km fjarlægð frá Selfossi. Eitt víðasta útsýni í byggð á landinu. Þar sést vel til Vestmannaeyja, Eyjafjallajökuls, Tindfjalla, Heklu og Hellisheiðar.
25 herbergi með uppbúnum rúmum, ýmist með sér baði eða sameiginlegu baði. Stór og rúmgóður veitingastaður er á staðnum, sem leitast við að vera með hráefni beint frá býli. Tilvalið fyrir hópa og einstaklinga. Þráðlaus nettenging, stórt útigrill, heitur pottur, reiðhjólaleiga, árabátur, veiði og gott leiksvæði fyrir börn á öllum aldri innandyra og utandyra.
Við bjóðum upp á notalega aðstöðu fyrir ferðamenn, hjón, einstaklinga eða fjölskyldur sem vilja hvíla sig og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða. Vatnsholt er fjölskylduvænn staður þar gestum gefst kostur á að kynnast lífinu í sveitinni. Á bænum eru hundar, hestar, kettir, kanínur, hænur, kindur og holdakýr. Hægt er að leigja bát og veiðistangir til að veiða í Villingaholtsvatni og/eða fuglaskoðun.
Reiðhjól eru einnig til leigu á staðnum fyrir þá sem vilja skoða Flóann á eigin afli. Fyrirmyndar leiksvæði fyrir börn og fullorðna, með veglegum útileiktækjum.
Margrét og Jóhann gera þeirra besta til að gera dvölina ánægjulega.
Vatnsholt er við veg nr. 309
Hafðu samband.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Geitur, hestar, nautgripir, kindur, hænur, kanínur, hundar og kettir.
Næsta þéttbýli/verslun/sund/golf: Selfoss 16 km
Gestgjafar
Margrét Ormsdóttir og Jóhann Helgi Hlöðversson