671 - Hótel Háland við Sprengisandsveg

  • Sveitahótel
Fjöldi rúma: 40
Opið: Allt árið
  • Cat IV - Herbergi eru með baði og eingöngu á sveitahótelum. Þá er gerðar meiri kröfur varðandi aðbúnað í herbergjum auk hærra þjónustustigs
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Netaðgangur
  • Reykingar bannaðar
  • Sjónvarp á herbergjum/bústað
  • Þráðlaust netsamband
  • Merktar gönguleiðir
  • Heitur pottur
  • Veiðileyfi seld
  • Máltíðir og/ eða léttar veit.
  • Vínveitingar
  • Tekur á móti opnum miðum fyrir herbergi
Hótel Háland er rekið af Hótel Rangá í samstarfi við Hálendismiðstöðina í Hrauneyjum. Á hótelinu eru 16 herbergi í IV flokki, 2 tveggja til fjögurra manna lúxussvítur og 2 fjögurra til sex manna fjölskyldusvítur. 

Gufubað, heitur pottur, góður veitingastaður, bar og 40 manna ráðstefnu- og veislusalur.
 
Fjöldi kortlagðra og merktra gönguleiða í nágrenninu, sumar þeirra góðar skíðagönguleiðir og reiðleiðir. Kjörið er að hafa hér samastað og fara í dagsferðir, jafnt að sumri sem vetri. 

Í næsta nágrenni eru margar þekktustu og fjölsóttustu náttúruperlur hálendisins s.s. Landmannalaugar, Hekla, Þjórsárdalur, Veiðivötn og Sprengisandur. Síðasta þjónusta með bensín o.fl. áður en lagt er á hálendið.
 
Hótel Háland er við veg 26, sem er malbikaður alla leið úr Reykjavík. Áætlunarbílar stoppa í Hrauneyjum.
 
 
Opið:  Allt árið.

Afþreying: Gönguleiðir, veiði

Áhugavert: Landmannalaugar, Hekla, Þjórsárdalur, Veiðivötn, Sprengisandur
 
Næsta þéttbýli: Flúðir 90 km, Hella/Selfoss 100 km.  



Gestgjafar Jórunn Eggertsdóttir, Friðrik Pálsson