Hálendismiðstöðina er kjörið að hafa sem dvalarstað og fara þaðan í dagsferðir, jafnt að sumri sem vetri. Í næsta nágrenni eru flestar þekktustu og fjölsóttustu náttúruperlur hálendisins s.s. Landmannalaugar, Hekla, Þjórsárdalur, Veiðivötn og Sprengisandur. Gisting, hádegis- og kvöldverðarhlaðborð í boði yfir sumartímann, funda- og námskeiðsaðstaða. Kortlagðar og merktar gönguleiðir í nágrenni, sumar þeirra góðar skíðagöngu- og reiðleiðir. Síðasta þjónusta með bensín o.fl. áður en lagt er á hálendið.
Hrauneyjar eru við veg 26, malbikað alla leið úr Reykjavík.
Opið: Allt árið (lokað yfir jól og áramót). Áætlunarbílar stoppa í Hrauneyjum.
Næsta þéttbýli: Flúðir 90 km, Hella/Selfoss 100 km.
Sundlaug: Þjórsárdalur 30 km.
Gestgjafar
Jórunn Eggertsdóttir, Friðrik Pálsson