Í boði er íbúð á jarðhæð með sérinngangi, þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Morgunmatur í boði ef óskað er eftir. Stutt í Þórsmörk, Vestmannaeyjar, Seljalandsfoss og Skóga. Njáluslóð ekki langt undan. Fögur fjallasýn í friðsælu umhverfi. Dvalargestir geta keypt veiðileyfi.
Búðarhóll stendur við veg 253 í Austur-Landeyjahreppi hinum forna 4 km. frá flugvellinum á Bakka og 9 km frá Landeyjahöfn.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Kýr og hestar.
Næsta þéttbýli/verslun/sundlaug: Hvolsvöllur 23 km.
Golf: Strandarvöllur 30 km.
Gestgjafar
Haraldur Konráðsson, Helga Bergsdóttir