651 - Fagrahlíð í Fljótshlíð

651 - Fagrahlíð í Fljótshlíð
    Heimagisting
Fjöldi rúma: 7
  • Nýr Bær
  • Cat I
  • Reykingar bannaðar
  • Merktar gönguleiðir
  • Heitur pottur
  • Máltíðir, aðrar en morgunmatur eru í boði ef pantað er fyrirfram.
  • Eldurnaraðstaða
  • Hjólaleiga
Lítil og notaleg gisting á bænum Fögruhlíð í Fljótshlíð, en húsið var byggt árið 1934. 2x2ja manna og 1x3ja manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Hjólaleiga er á staðnum og hægt að fara í skipulagðar hjólaferðir frá bænum. Fljótshlíðin er um 105 km frá Reykjavík sem er um klukkustundar akstur.
 
Fegurð Fljótshlíðar felst í kyrrð og krafti náttúrunnar þar sem umhverfið mótast annars vegar af jöklum (Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull) og hins vegar af endalausri víðáttu út á ysta sjóndeildarhring. Úr brekkunni í Fögruhlíð birtist víðátta Suðurlandsundirlendis og Vestmannaeyjar sjást úti við sjóndeildarhring og virðast ójarðneskt ævintýraland sem svífur í loftinu fremur en að vera umflotnar sjó.

Fagrahlíð er við veg nr. 261.
 
Opið: 01.06-15.09.
 
Næsta þéttbýli/sundlaug:  Hvolsvöllur 5 km.
Hestaleiga:  Smáratún 5 km.
Golf:  Hellishólar: 5 km.
Gestgjafar Bergþóra Reynisdóttir