Lítil og notaleg gisting á bænum Fögruhlíð í Fljótshlíð, en húsið var byggt árið 1934. 2x2ja manna og 1x3ja manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi.
Hjólaleiga er á staðnum og hægt að fara í skipulagðar hjólaferðir frá bænum. Fljótshlíðin er um 105 km frá Reykjavík sem er um klukkustundar akstur.
Fegurð Fljótshlíðar felst í kyrrð og krafti náttúrunnar þar sem umhverfið mótast annars vegar af jöklum (Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull) og hins vegar af endalausri víðáttu út á ysta sjóndeildarhring. Úr brekkunni í Fögruhlíð birtist víðátta Suðurlandsundirlendis og Vestmannaeyjar sjást úti við sjóndeildarhring og virðast ójarðneskt ævintýraland sem svífur í loftinu fremur en að vera umflotnar sjó.
Fagrahlíð er við veg nr. 261.
Opið: 15.05-15.09.
Næsta þéttbýli/sundlaug: Hvolsvöllur 5 km.
Hestaleiga: Miðhhús 5 km.
Golf: Hellishólar: 3 km.
Gestgjafar
Bergþóra Reynisdóttir