Notalegt sveitahótel í miðri Fljótshlíðinni sem telur 12 tveggja manna og 2 þriggja manna rúmgóð og herbergi, öll með sér baðherbergi. Gistiheimili með sameiginlegu baðherbergi þar sem boðið er uppá gistingu bæði í svefnpokaplássi og í uppbúnu rúmi.
Tvö 6-10 manna og eitt 6 manna sumarhús með heitum potti í flokk D. Eitt 4-6 manna sumarhús í flokk C og fjögur 4ra manna smáhýsi í flokki II. Rúmgóð eldunaraðstaða í sal í boði fyrir alla gesti.
Tveir veitinga- og ráðstefnusalir.
Í veitingasal er boðið uppá morgunverð og ljúffengan kvöld- og hádegisverð eftir pöntun.
Afþreying: Hestaleiga, gæsa- og silungsveiði á staðnum. Næsti golfvöllur að Hellishólum (2 km). Kaffi Langbrók, kaffihús og sveitakrá (4 km). Daglegar rúturferðir í Þórsmörk frá Hvolsvelli og í Landmannalaugar frá Hellu. 25 mínútna akstur til Landeyjarhafnar í Bakkafjöru.
Barnvænt umhverfi. Gæludýr ekki leyfð.
Smáratún er við þjóðveg 261.
Hafðu sambandOpið: Allt árið.
Búskapur: Nautgripir, hestar, aliendur, íslenskar landnámshænur, akurhænur og kanínur.
Næsta þéttbýli/sundlaug: Hvolsvöllur 13 km.
Gestgjafar
Guðný Geirsdóttir, Sigurður Eggertsson, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Ívar Þormarsson.