Í Sólheimahjáleigu er boðið er upp á herbergi með og án baðs. Bærinn er vel staðsettur til skoðunarferða um Suðurland. Í nágrenninu eru t.d. Dyrhólaey, Reynisfjara, Vík, Þakgil, Sólheimajökull og Byggðasafnið í Skógum. Um 45 mínútna akstur er í Landeyjahöfn.
Ýmiskonar afþreying í boði í byggðarlaginu, t.d. snjósleðaferðir á Mýrdalsjökul, jöklaganga og ísklifur á Sólheimajökli og hestaleigur. Stutt í fallega sandfjöru.
Gestum gefst kostur á að skoða búskapinn í samráði við gestgjafa.
Sólheimahjáleiga er 1,3 km frá þjóðvegi 1 (24 km vestan Víkur).
Opið: Allt árið.
Búskapur: Kýr, kindur, hestar og hænsni.
Verslun/Sundlaug: Vík 24 km.
Gestgjafar
Elín Einarsdóttir and family