Gisting í 36 tveggja manna herbergjum og 1 eins manns herbergi. 14 herbergi í sérhúsi öll með sérbaðherbergi, átta herbergi eru í aðalgistihúsi, eitt með sérbaðherbergi en hin deila tveimur baðherbergjum, þar er jafnframt móttaka, stór setustofa og veitingasalur.
Átta herbergi eru í 4 smáhýsum, tvö í hverju húsi og baðherbergi á milli þeirra. Fimm herbergi eru í sérhúsi með setustofu og tveimur baðherbergjum.
Á jarðhæð í aðalgistihúsinu er baðhús fyrir gesti gistiheimilisins með heitum potti, gufubaði, sturtum og búningsklefum fyrir karla og konur auk hvíldaraðstöðu.
Veitingar: Morgunverður, kvöldverður, nestispakkar og vínveitingar.
Áhugaverðir staðir: Þjóðgarðurinn í Skaftafelli 20 km, Jökulsárlón 37 km. Ferðir í Ingólfshöfða og skipulagðar gönguferðir í þjóðgarðinum.
Hof er við hlíðar Öræfajökuls og þjóðveg 1
Opið: 19.05. - 07.09.
Næsta þéttbýli: Kirkjubæjarklaustur 80 km
Verslun: Freysnes 15 km.
Sundlaug: Kirkjubæjarklaustur 80 km
Gestgjafar
Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Knútur Bruun