6 - Gunnarshólmi v/ Suðurlandsveg

  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 12
Opið: Allt árið
  • Cat I - Herbergi eru án baðs og handlaugar
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Reykingar bannaðar
  • Sjónvarp á herbergjum/bústað
  • Þráðlaust netsamband
  • Þvottaaðstaða
  • Heitur pottur
  • Hestaferðir
  • Jeppaferðir
  • Veiðileyfi seld
  • Eldurnaraðstaða
  • Máltíðir, aðrar en morgunmatur eru í boði ef pantað er fyrirfram.
  • Tekur á móti opnum miðum fyrir herbergi

Gistiheimilið Gunnarshólmi er vel staðsett hvort sem menn kjósa að dvelja úti í sveit eða verja tíma sínum í borginni, þar sem Gunnarshólmi er einungis 15 km frá miðbæ Reykjavíkur.

Í húsinu eru 6 tveggja manna herbergi, að auki er í húsinu tvö baðherbergi með sturtu og þvottavélum sem gestir hafa aðgang að, eldunaraðstaða með öllum nauðsynlegum áhöldum og setustofu með sjónvarpi og DVD spilara. Hægt er að fá barnarúm og aukarúm inn á herbergi. Við húsið er verönd með heitum potti.

Seld eru veiðileyfi í Hólmsá sem liggur meðfram Gunnarshólma og þar veiðist silungur og einstaka lax á sumrin, gestir geta fengið leigðar veiðistangir.

Á Gunnarshólma erum við einnig með super-jeep af stærstu gerð og bjóðum upp á bæði dagsferðir og lengri ferðir eftir samkomulagi, hvort sem þig langar í jöklaferð, ferð til vestmannaeyja, ferð í Þórsmörk, gullfoss, geysir eða hvað annað sem hugurinn girnist.

Á Gunnarshólma er stunduð hestarækt og fyrirhugað er að opna hestaleigu næsta sumar.

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er einungis í um það bil 20 km fjarlægð frá gistiheimilinu.

Hafðu samband 

Opið: Allt árið

Næsta þéttbýli: Miðbær Reykjavíkur er í 15 km fjarlægð



Gestgjafar Jóna Margrét Kristinsdóttir, Gunnar Haraldsson