592 - Smyrlabjörg í Suðursveit

592 - Smyrlabjörg í Suðursveit
  • Sveitahótel
Fjöldi rúma: 97
  • Cat I - Herbergi eru án baðs og handlaugar
  • Cat IV - Herbergi eru með baði og eingöngu á sveitahótelum. Þá er gerðar meiri kröfur varðandi aðbúnað í herbergjum auk hærra þjónustustigs
  • Aðstaða fyrir fatlaða
  • Handverk sýnt á bænum
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Reykingar bannaðar
  • Þráðlaust netsamband
  • Hefðbundinn búskapur
  • Snjósleðaferðir
  • Máltíðir og/ eða léttar veit.
  • Vínveitingar
Velbúið sveitahótel við rætur Vatnajökuls, þar sem lögð er áhersla á að matvæli komi úr heimabyggð.
Á sumrin er boðið upp á kvöldverðarhlaðborð með fjölda rétta úr ríki Vatnajökuls.

Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða, einnig veislusalur sem tekur um 100 manns í sæti sem er tilvalin fyrir árshátíðir, afmæli og aðra viðburði. Gönguleiðir eru í nágrenninu sem henta til skoðunar á fuglum, gróðri og fjölbreyttri náttúru.  

Allir velkomnir að kíkja við í kaffi, mat eða gistingu.
 
Smyrlabjörg standa við veg 1.
 
 
Opið: 05.01-21.12
 
Búskapur/gæludýr: Kindur, hestar, nautgripir, hænur, endur og hundar.
 
Næsta þéttbýli/verslun/sundlaug/golfvöllur: Höfn 45 km.
 
Gestgjafar Laufey Helgadóttir, Sigurbjörn Karlsson