588 - Hólmur á Mýrum

588 - Hólmur á Mýrum
  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 16
  • Cat I - Herbergi eru án baðs og handlaugar
  • Sleeping bag
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Netaðgangur
  • Reykingar bannaðar
  • Hefðbundinn búskapur
  • Fuglaskoðun
  • Merktar gönguleiðir
  • Húsdýr til sýnis
  • Máltíðir, aðrar en morgunmatur eru í boði ef pantað er fyrirfram.

Gistiaðstaða í gömlu hlýlegu húsi 6x2ja manna herbergi. Einnig er boðið upp á 2x2ja manna herbergi á heimili gestgjafa. Morgunverður er í boði, og einnig kvöldverður ef pantað er fyrirfram.  Eldunaraðstaða í boði 16.09-31.05.

Veitingaaðstaða er í gömlu endurgerðu fjósi og boðið er upp á kaffi og kökur, ásamt léttum veitingum yfir daginn. 
Á bænum er rekinn húsdýragarður með fjölbreyttum dýrategundum. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu t.d. inn að, og við Fláajökul. Nálægt bænum er fjölbreytt fuglalíf. Einnig eru í boði ferðir  niður á fjörur með leiðsögn allt árið og hreindýraskoðunarferðir á veturna.
 
Hólmur er við veg nr.1.

Opið:  Allt árið (lokað yfir jól og áramót)

Búskapur/gæludýr:  Kindur, geitur, hestar, kanínur, köttur, hundur, hænsni, endur, naggrísir, kálfar, heimalingar, svín o.fl.

Næsta þéttbýli/sundlaug/golfvöllur/verslun/Jöklasafn/Byggðasafn:  Höfn 33 km. 
Gestgjafar Guðrún Guðmundsdóttir, Magnús Guðjónsson