542 - Fljótsdalsgrund í Fljótsdal

  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 40
Opið: Allt árið
  • Cat III - Herbergi eru með sérbaðherbergi og er þau að finna á gistihúsum og í heimagistingu
  • Sleeping bag
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Reykingar bannaðar
  • Sjónvarp á herbergjum/bústað
  • Þvottaaðstaða
  • Aðstaða til fundar og rástefnu
  • Merktar gönguleiðir
  • Stæði fyrir húsbíla
  • Tjaldsvæði
  • Veiðileyfi seld
  • Eldurnaraðstaða
  • Máltíðir, aðrar en morgunmatur eru í boði ef pantað er fyrirfram.
  • Vínveitingar
  • Tekur á móti opnum miðum fyrir herberg og svefnpokaplássii
Gistiheimilið Fljótsdalsgrund í Fljótsdal býður uppá notalega gistingu í 10 x 2ja manna stúdíóíbúðum með sérbaðherbergi, eldunaraðstöðu og sjónvarpi. Svefnsófar eru í þremur íbúðum sem hentar vel fjölskyldufólki. Svefnpokapláss í sal fyrir allt að 20 manns og fullbúið tjaldsvæði með aðstöðu fyrir húsbíla. 

Stórt sameiginlegt rými með arni og stór verönd með grillaðstöðu. Leiksvæði fyrir börn. Gott aðgengi fyrir fatlaða.

Morgunverður í boði og kvöldverður frá 15. júní til 20. ágúst ef bókað er fyrirfram.

Einstök náttúra allt um kring, góð staðsetning fyrir veiði, hreindýraveiðar, göngur og skoðunarferðir um Austurland.  Á Fljótsdalsgrund er einstök kyrrð og ró, myrkrið fær að njóta sín og oft er hægt að sjá Norðurljósin á fallegum vetrarkvöldum. 

Hentugur staður fyrir ættarmót og aðra viðburði, möguleiki á að kveikja á brennu.

  
 
Opið:
 Allt árið. 

Í nágrenninu: Valþjófsstaðakirkja, Fljótsdalsstöð, Skriðuklaustur, Hengifoss, Hallormsstaðaskógur, Ranaskógur, Strútsfoss, Kárahnjúkar, veiði í Kelduá og Gilsárós.
 
Næsta þéttbýli/Verslun/Sundlaug:
 Egilsstaðir 40 km. 

Golf:
 Ekkjufell 37 km. 





Gestgjafar Helga Hallbjörg Vigfúsdóttir, Jósef Valgarð Þorvaldsson