Tvö 40 m2 sumarhús sem deila sameiginlegum palli með góðu útsýni yfir Lagarfljótið. Í öðru húsinu er 1 svefnherbergi með 4 rúmum og í hinu eru 2 svefnherbergi með gistirými fyrir 6 manns.
Skemmtilegar gönguleiðir eru um Hallormsstaðarskóg, sem m.a. liggja við Hafursá. Á Hallormsstað er ýmis afþreying í boði s.s. sundlaug og hestaleiga. Bátaleiga er í Atlavík og hægt er að fara í siglingu á Lagarfljótsorminum.
Hafursá stendur við veg nr. 931.
Hafðu samband.
Opið: 15.05-15.09.
Næsta þéttbýli/verslun: Egilsstaðir 22 km.
Sundlaug: Hallormsstaður 5 km.
Gestgjafar
Þorkell Sigurbjörnsson og Anna Hjaltadóttir