536 - Útnyrðingsstaðir á Héraði

536 - Útnyrðingsstaðir á Héraði
  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 12
  • Nýr Bær
  • Cat I
  • Sleeping bag
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Hefðbundinn búskapur
  • Merktar gönguleiðir
  • Hestaferðir
Boðið er upp á gistingu í uppbúnum rúmum með morgunverði í íbúðarhúsi á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru 2 fjölskylduherbergi með sameiginlegu baðherbergi og sér inngangi. Á efri hæð eru 3x2ja manna herbergi með sameiginlegri snyrtingu, borðstofu og eldhúsi ásamt sér inngangi.
 
Boðið er upp á hestaferðar með leiðsögn frá 1 klst upp í  7 daga ferðar. Frábærir möguleikar til styttri gönguferða  á malbornum stígum.
 
Útnyrðingsstaðir eru fornt býli í skógivöxnu umhverfi þar sem bændur af sömu fjölskyldu hafa búið í meira en 300 ár. Á býlinu er rekið hrossabú, tamningastöð og ferðaþjónusta / hestaferðar- Gæðingatours.
 
Útnyrðingsstaðir eru við þjóðveg nr. 1 (6  km sunnan við Egilsstaði).
 
 
Opið:  07.06-30.09.
 
Búskapur:  Hestar, kindur. skógrækt.
 
Næsta þéttbýli/ sundlaug:  Egilsstaðir 7 km.
Golf: Fellabær 9 km.
       
Gestgjafar Stefán Sveinsson