Gistiheimilið Eyvindará er staðsett í fögru umhverfi, mikill gróður, tré og klettar setja svip á landslagið. Fjölbreytt gistiaðstaða; 10 nýleg herbergi með baði og er sérinngangur inn í hvert herbergi. Hvert herbergi hefur sína eigin verönd sem snýr út að grónu landi með fallegu útsýni yfir Egilsstaði og Hérað.
Í aðalhúsinu er gisting í 4 x 2ja manna herbergjum án baðs. Setustofa og sólpallur fyrir gesti. Einnig 1 x 3ja manna og 1 x 2ja manna herbergi með baði og sér inngangi við hliðina á aðalhúsi, 3 herbergi í smáhýsum (fl. III) og eitt sumarhús í flokki C (1x2ja manna; svefnherbergi og svefnsófi í stofu). Eldunaraðstaða fyrir gesti í sumarhúsinu og einu smáhýsinu.
Kvöldverður í boði fyrir næturgesti frá 01.06-31.08. Aðgangur að þvottavél.
Eyvindará er við veg 94, ca. 500 m. frá afleggjaranum til Seyðisfjarðar.
Opið: 01.03 - 15.11.
Næsta þéttbýli/sundlaug/veitingastaður/golf: Egilsstaðir 2 km.
Skíðasvæði: Stafdalur 15 km, Oddskarð 60 km.
Gestgjafar
Sigurbjörg Inga Flosadóttir