Tvö 5 manna sumarhús, staðsett á fallegum stað í Ekrulandi í Hjaltastaðaþinghá. Tvö svefnherbergi (hjónaherbergi og eitt kojuherbergi), baðherbergi, eldhúskrókur og stofa. Sjónvarp, DVD og grill á veröndinni. Nettenging í gegnum 3G Símans.
Fallegt útsýni frá bústöðunum þ.e. yfir Lagarfljótið, vötn, hamrar, klettar, tindar, lyng og tún. Veiðileyfi eru seld á bænum.
Í nágrenninu eru gamall torfbær á Galtastöðum og gamla skólasetrið að Eiðum. Þá er tilvalið að fara í dagsgöngu í Stórurð sem er ógleymanleg upplifun.
Bærinn Ekra stendur við Lagarfossveg, nr. 944.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Kindur.
Næsta þéttbýli/verslun/þjónusta/sund: Egilsstaðir 30 km.
Gestgjafar
Kristjana Júníusdóttir, Sigmundur Halldórsson