Kríunes er fallegt gistiheimili í suðrænum stíl, staðsett rétt við bæjarmörkin vestanvert við Elliðavatn í landi Vatnsenda. Stutt er í alla þjónustu á höfuðborgarsvæðinu s.s verslanir, sundlaugar, banka o.fl. Boðið er upp á 8 falleg herbergi með baðherbergi. Einnig er boðið upp á svítur sem eru t.d. vinsælar fyrir brúðkaupsnótt. Fundaraðstaða er á staðnum, boðið er upp á veitingar þ.m.t. kvöldverð. Veiðileyfi í Elliðavatn, hjólaleiga og bátaleiga eru á staðnum. Púttvöllur og 3 stuttar holur. Margar merktar gönguleiðir í nágrenninu.
Kríunes er við veg 410.
Verslun/sund/golf: 3 km.
Gestgjafar
Björn Ingi Stefánsson