459 - Skúlagarður

  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 34
Opið: Allt árið
  • Cat III - Herbergi eru með sérbaðherbergi og er þau að finna á gistihúsum og í heimagistingu
  • Aðstaða fyrir fatlaða
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Reykingar bannaðar
  • Aðstaða til fundar og rástefnu
  • Golfvöllur við bæinn eða nágr.
  • Merktar gönguleiðir
  • Veiðileyfi seld
  • Máltíðir og/ eða léttar veit.
  • Tekur á móti opnum miðum fyrir herbergi
 
Í Skúlagarði er rekið hótel allt árið. Þar er boðið upp á gistingu í 17 tveggja manna herbergjum með baði og þar af er eitt herbergi sérútbúið fyrir fatlaða, og fjögur stærri herbergi sem nýta má sem fjölskylduherbergi. Öll herbergin eru nýuppgerð og voru fyrst tekin í notkun vorið 2011.

Í Skúlagarði er veitingasala og á matseðli okkar leggjum við áherslu á einfaldan heimilismat með hráefni úr héraði, svo sem lambakjöti frá bændum úr sveitinni, bleikju og laxi frá fiskeldinu í Rifós og grænmeti úr héraði. Okkar áhersla er á einfaldleika og að ferskt hráefni fái notið sín sem best.

Segja má að Skúlagarður sé umkringdur öllum helstu náttúruperlum norðurlands enda aðeins í tíu kílometra fjarðlægð frá Vatnajökulsþjóðgarði. Jökulsárgljúfur með öllum sínum náttúruperlum, Dettifoss, Hólmatungur, Hljóðaklettar og Ásbyrgi svo fátt eitt sé nefnt, þá Gjástykki þar sem jarðsagan er ljóslifandi, eins og öll Ásheiðin sem umbreyttis í jarðhræringum fyrir um 30 árum. Skjálftavatn, gríðarstórt vatn sem myndaðist í sömu jarðhræringum og er stórkostleg fuglaparadís þar sem áður var eyðisandur. Það er einlægur ásetningur okkar sem rekum Hótel Skúlagarð að gera eins vel og við getum fyrir okkar gesti, og hefur það gengið vel undanfarin tvö ár og erum við mjög þakklát fyrir góðar óskir okkur til handa frá gestum.

Hafa samband

 
Opið:
Allt árið

Veitingar: Veitingastaður/kaffihús (01.11 - 01.04 máltíðir bókaðar fyrirfram)

Afþreying: Veiðileyfi

Áhugavert: Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Dettifoss

Þéttbýli: Húsavík 50km



Gestgjafar Axel