Gististaður mitt á milli Húsavíkur og Mývatns, 3 km. frá Laxárvirkjun. 8 x 2ja manna herbergi með baði í sérhúsi. Einnig 4 herbergi heima á bæ; 1x2ja manna herbergi, fjölskylduherbergi (hjónaherbergi og koja/setustofu í fremra herbergi) og 2xeins manns herbergi.
Góð staðsetning fyrir dagsferðir til Húsavíkur þar sem m.a. er hægt að fara í hvalaskoðun, Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum, að Mývatni og Herðubreið. Grenjaðarstaðir 5 km, Goðafoss 17 km. Mývatn 32 km.
Brekka er við veg 853.
Opið: Allt árið, fyrirfram bókanir 15.09-31.05.
Næsta þéttbýli/golf: Húsavík 30 km.
Sundlaug: Heiðarbær.
Gestgjafar
Reynir Baldur Ingvason, Hólmfríður Eiríksdóttir