Sveitahótel staðsett á fallegum stað í austanverðum Eyjafirði aðeins 15 km frá Akureyri.
Gisting í tveimur húsum, 33 herbergi – öll með sérbaðherbergi, sjónvarpi og síma. Frábær staðsetning til að fylgjast með sólsetrinu á sumrin og norðurljósunum á veturna. Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða fyrir allt að 50 manns. Veislusalur fyrir allt að 100 manns í sæti, tilvalið fyrir árshátíðir og fundi. Arinn í setustofu og í borðsal. Góð staðsetning fyrir skoðunarferðir um Norðurlandið. Góðar gönguleiðir í nágrenninu og hentugt fyrir skíðafólk á veturna. Heitur pottur. Vinalegt og persónulegt andrúmsloft.
Sveinbjarnargerði er við veg 1, 15 km. frá Akureyri.
Opið: Allt árið. Fyrirfram bókanir 01.10. - 30.04.
Verslun/sundlaug/golf: Akureyri 15 km.
Gestgjafar
Anný Larsdóttir, Jónas Halldórsson, Guðbjörg Lárusdóttir, Jónas H. Jónasson.