Í boði er gisting í gamla bænum. Á neðri hæð eru 2x2ja manna herbergi í fl.I og á efri hæð eru 3 herbergi í svefnpokkaplássi (1x3ja manna og 2x2ja manna). Hægt að leigja allt húsið.
Bærinn stendur á fallegum stað við Elliðavatn. Ágætis gönguleiðir og möguleiki á fuglaskoðun.
Stutt er í alla þjónustu bæði í Kópavogi og Reykjavík. Strætó nr. 28 stoppar rétt hjá. Sundlaug, verslun og bensínstöð í næsta nágrenni.
Elliðahvammur er við Elliðahvammsveg.
Hafðu samband.
Opið: 01.03.-30.09.
Athugið: í mars, apríl og maí 2012 er aðeins opið fyrir svefnpokapláss.
Búskapur: Eggja- og kjúklingaframleiðsla.
Gestgjafar
Aðalheiður Þorsteinsdóttir