Gisting á fallegum stað í Eyjafjarðarsveit með útsýni yfir fjörðinn. 17 herbergi með baði (2ja, 3ja og 4ra manna herbergi). Boðið upp kvöldverð ef pantað er með fyrirvara.
Fundaraðstaða, tilvalin fyrir námskeið og fyrirlestra. Góðar gönguleiðir í nágrenninu og stutt í áhugaverða staði.
Öngulsstaðir eru við veg 829, 12 km fyrir innan Akureyri.
Opið: 01.05–30.09, opið eftir samkomulagi hina mánuðina.
Næsta þéttbýli: Akureyri 12 km.
Golf: Þverá 2 km, Leifsstaðir 7 km, Akureyri 12 km.
Sundlaug: Hrafnagil 5 km.
Skíðasvæði: Hlíðarfjall 14 km.
Gestgjafar
Hrefna Laufey Ingólfsdóttir