Í Skjaldarvík er boðið upp á gistingu í 27 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu. Herbergin eru eins til fjögurra manna og hægt að koma fyrir aukarúmum í mörgum tilvikum. Góð rúm eru í öllum herbergjum, þægilegir svefnsófar í þriggja til fjögurra manna herbergjum.
Mjög gott aðgengi fyrir fatlaða er um allt hús. Boðið er uppá tveggja rétta kvöldverð yfir sumartíman. Að sjálfsögðu er boðið upp á mar fyrir hópa á öðrum tímum sé þess óskað.
Í austurálmu er notaleg setustofa og bar með sjónvarpi, bókasafni og spilum. Í bakgarði eru svo heiti potturinn en hvergi er betra að láta líða úr sér eftir góðan dag. Á lóðinni er notalegur trjálundur þar sem gestir og gangandi geta tyllt sér niður með kaffibolla, morgunverðinn eða bara lagst í hengirúmið og látið sig dreyma.
Skemmtilegt úrval af íslenskri vöru og hönnun er í boði sem best er að kynna sér á staðnum.
Hestaleiga er einnig starfrækt í Skjaldarvík og frábærar reið leiðir eru í næsta nágrenni. Hestaleigan er opin frá 15. maí til 30. september. Í sveitinni eru dýr og þannig er það að sjálfsögðu hér, hestarnir okkar eru hér allt í kring og í góðu lagi að lauma brauðsneið í vasann og fara að færa ferfætlingunum. Tíkin Nótt er á verði, kann samt ekkert að bregðast við óboðnum gestum, því það eru allir velkomnir. Kötturinn sleikir sólina og þolir illa þessar kanínur sem þykjast ekkert þurfa að gera annað en að éta. Verslunin okkar býður upp á skemmtilegt úrval af íslenskri vöru og hönnun sem best er að kynna sér á staðnum. Velkomin í sveitina!
Skjaldarvík stendur við veg 816.
Hafðu samband.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Hestar, hundur, kanínur og landnámshænur.
Næsta þéttbýli: Akureyri 5 km.
Gestgjafar
Dísa & Óli