Íbúð (D) 
Vel útbúin íbúð á neðstu hæð í fallegu íbúðarhúsi á Vatnleysuströnd, aðeins nokkra metra frá ströndinni. Aðstaðan hentar vel fyrir tvo en gistirýmið er fyrir allt að fjóra gesti. Sér inngangur inn í íbúðina. Eldhús, stofa, baðherbergi og eitt svefnherbergi (einnig gisting fyrir tvo í stofunni). Húsið var upprunalega byggt 1929 en 1999 var húsið stækkað og tekið í gegn. Húsið og umhverfið hafa regulega verið nýtt til myndatöku, árið 2008 og árið 2011 fékk það verðlaun fyrir snyrtilegt umhverfi.
Bústaður (C)
Fallegur og vel útbúinn bústaður á sama stað nálægt ströndinni. Aðstaðan hentar vel fyrir tvö pör eða fjölskyldu og er gistirými fyrir allt að 6 gesti. Möguleiki er að setja aukarúm fyrir 2.
3 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og baðherbergi.
Báðir staðir hafa fallegt útsýni í allar áttir. Tilvalið til fuglaskoðunar og hægt að kafa við ströndina (nauðsyn að koma með eigin búnað). Bátur er til afnota. Fallegar gönguleiðir í nágrenni.
Góð staðsetning til skoðunarferða bæði á Reykjanesi og í nágrenni Reykjavíkur (30 mínútna akstur í miðbæ Reykjavíkur).
Minna Knarrarnes er við veg 420.
Hafðu samband
Opið: Allt árið. Lágmarksdvöl yfir sumartímann eru 2 nætur.
Sund: Vogar 4 km, Bláa lónið 15 km.
Þéttbýli/verslun: Vogar 4 km.
Golf: Kálfatjarnarvöllur 2 km.
Gestgjafar
Birgir Þórarinsson, Anna Rut Sverrisdóttir