Heydalur ævintýradaluri í Djúpinu. Sveitahótel með gistingu í 8x2ja manna og 1x3 manna herbergjum með baði. Einnig sumarhús. Veitingar í glæsilegum sal.
Afþreying í boði: Kajakróður í Mjóafirði, hestaleiga, silungsveiði í fjallavötnum (2ja tíma ganga), ýmsar gönguleiðir, fugla- og plöntumerkingar. Heit náttúruleg laug, sundlaug í suðrænum gróðurskála og nýstárlegir pottar (onsen). Leiksvæði með leiktækjum fyrir börn og unglinga. Snjósleðaleiga.
Tjaldsvæði með aðgangi að salerni og sturtum.
Heydalur er við veg 633. Við Mjóafjarðarbrú er beygt af að vestanverðu á veg 633 og keyrðir 12 km inn fjörðinn að Heydal.
Opið: Allt árið. Á veturna þarf að panta fyrirfram.
Búskapur/gæludýr: Hestar, köttur, hundur og talandi páfagaukur.
Næsta þéttbýli/verslun: Hólmavík 110 km, Súðavík 120 km.
Gestgjafar
Stella Guðmundsdóttir, Gísli Pálmason