Breiðavík er það gistihús sem er næst Látrabjargi. Látrabjarg er eitt stærsta fulgabjarg heims og er þekkt fyrir nálægðina við lundann og hið fjölbreytta fuglalíf sem þar er.
Í Breiðavík eru 24 herbergi með baði í sér húseiningum. Tvö herbergi eru án baðs (1x2ja manna og 1x3ja manna). Einnig svefnpokagisting í 8x2ja manna herbergjum. Veitingar og vínveitingar. Frítt kaffi fyrir gesti og gangandi. Í Breiðavík er mikið fuglalíf og falleg 6 km löng strönd sem einkennist af gullnum skeljasandi. Ekkert er rómantískara en ganga í kvöldsólinnni en hana má sjá til hún hverfur í hafið.
Látrabjarg er í 12 km, fjarlægð. Mikið fuglalíf og falleg fjara. Silungsveiði við bæinn og í fjallavötnum.
Breiðavík stendur við þjóðveg 612 sem liggur til Látrabjargs.
Næsta þéttbýli: Patreksfjörður 50 km.
Gestgjafar
Birna Mjöll Atladóttir, Keran Stueland Ólason