178 - Hótel Látrabjarg í Patreksfirði

178 - Hótel Látrabjarg í Patreksfirði
  • Gistihús bænda
Fjöldi rúma: 27
  • Cat II - Herbergi eru með handlaug og fatahengi
  • Cat III - Herbergi eru með sérbaðherbergi og er þau að finna á gistihúsum og í heimagistingu
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Reykingar bannaðar
  • Þráðlaust netsamband
  • Fuglaskoðun
  • Aðstaða til fundar og rástefnu
  • Merktar gönguleiðir
  • Heitur pottur
  • Veiðileyfi seld
  • Máltíðir og/ eða léttar veit.
  • Vínveitingar
Hótel Látrabjarg er í næsta nágrenni við Látrabjarg, eitt stærsta fuglabjarg heims sem er þekkt fyrir einstakt fuglalíf. 

Notalegt fjölskylduhótel sem býður rúmgóð og falleg herbergi, með og án baðs. Veitingasalur fyrir um 40-60 manns og bar. Fjölbreyttur morgunverður og góður heimilismatur á kvöldin í boði fyrir hótelgesti. 

Hótelið er staðsett í Örlygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð. Fjölbreytt afþreying. Frábært umverfi fyrir fuglaskoðun og almenna náttúruskoðun og ljósmyndun. Stutt á Látrabjarg, Rauðasand, Kollsvík, Selárdal og fossinn Dynjanda. Í Örlygshöfn í göngufæri við hótelið er m.a. hvít sandströnd, hestaleiga og Minjasafnið á Hnjóti. Heitar náttúrulaugar eru í nágrenninu.
 
    
   
Opið:  25.05-23.09. Hægt er að bóka hópa utan hefðbundins opnunartíma.
 
Næsta þéttbýli/sundlaug/verslun: Patreksfjörður 40 km.
 
Við veg nr. 615
Frá Reykavík er ekið til Patreksfjarðar gegnum Búðardal eða með ferju frá Stykkishólmi. Í botni Patreksfjarðar er beygt í átt að Látrabjargi á veg 612. Ekið er um 26km eftir vegi 612 framhjá Minjsafninu á Hnjóti og síðan beygt til hægri á næstu gatnamótum. Þaðan ekið 3 km eftir vegi nr. 615 framhjá bæjunum Efri og Neðri Tungu í Örlygshöfn. Hótel Látrabjarg er þar á vinstri hönd.
 
Gestgjafar Sigríður Huld Garðarsdóttir, Karl Eggertsson