Hefðbundinn sveitabær. Gisting í uppbúnum rúmum í 3x 2ja manna og 1x1 manns á neðri hæð íbúðarhússins. Einnig 10 x 2ja manna herbergi í sérhúsi. Heitur pottur. Fallegt útsýni og áhugaverðar gönguleiðir um nágrennið (Brúarskörð, Kóngsvegur), silungsveiði í Brúará. Hestaleiga fyrir gesti.
Efsti-Dalur II er við veg nr. 37.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Kýr, hestar, svín, hundar, kettir og kanína.
Næsta þéttbýli/sundlaug: Laugarvatn 13 km, Geysir 15 km, Reykholt 13 km.
Golf: Miðdal 8 km, Úthlíð 5 km.
Gestgjafar
Björg Ingvarsdóttir, Snæbjörn Sigurðsson